Ársreikningur Landsvaka hf. 2006 Inngangur: Stjórn Landsvaka hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði Landsbankans, hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2006. Á árinu 2006 útvíkkaði Landsvaki vöru- og þjónustuframboð sitt með stofnun sjö nýrra sjóða; fjögurra fjárfestingarsjóða og þriggja fagfjárfestasjóða. Landsvaki hf. er dótturfélag Landsbanka Íslands hf. og er A-hluti ársreiknings Landsvaka hf. hluti af samstæðureikningi bankans. Lykiltölur í þúsundum króna 1.1-31.12.2006 1.1-31.12.2005 Hreinar rekstrartekjur 1.341.977 1.191.009 Rekstrargjöld 1.305.950 1.098.402 Hagnaður fyrir skatta 36.027 92.606 Hagnaður eftir skatta 29.543 75.937 Eigið fé 119.945 190.402 Eiginfjárhlutfall 17,7% 36,4% Eiginfjárhlutfall* 21,2% 55,1% * skv. ákvæðum 84. gr. laga um fjármálafyrirtæki. " Heildarfjármunir í stýringu Landsvaka námu 165,2 milljörðum króna í árslok. " Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning rekstrarfélagsins og B-hluta sem inniheldur ársreikning verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar voru af Fjármálaeftirlitinu. " Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af PricewaterhouseCoopers sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóða í rekstri. Horfur í rekstri Landsvaka hf. eru almennt góðar og félagið er vel í stakk búið til að mæta vexti í starfseminni. Lykilárangursþættir í rekstri Landsvaka er árangur í ávöxtun fjármuna og vöxtur stofna í umsýslu. Vel hefur tekist til með ávöxtun sjóða og stofnar félagsins vaxið verulega en Landsbankinn er aðalsöluaðili sjóða Landsvaka. Verðbréfasjóðir, fjárfestingarsjóðir og fagfjárfestasjóðir Landsvaka hf. árið 2006. " Í árslok 2006 voru níu verðbréfasjóðir, tíu fjárfestingarsjóðir og fimm fagfjárfestasjóðir í rekstri hjá Landsvaka hf. og námu heildarfjármunir í stýringu 165,2 milljörðum króna sem er aukning um 37,6% á árinu. " Ávöxtun sjóða félagsins var góð á árinu 2006. Ávöxtun verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða er birt í skýringu 3 með viðkomandi ársreikningum Landsvaka hf.. Heildarhagnaður færður á hlutdeildarskírteini var 16.880 milljónir króna á árinu. " Á árinu 2006 voru keypt hlutdeildarskírteini í verðbréfasjóðum Landsvaka hf. fyrir samtals 28.493 milljónir króna og innleyst fyrir 39.204 milljónir króna. Innlausnir umfram sölu námu 10.711 milljónum króna. " Á árinu 2006 voru keypt hlutdeildarskírteini í fjárfestingarsjóðum Landsvaka hf. fyrir samtals 427.696 milljónir króna og innleyst fyrir 399.627 milljónir króna. Sala umfram innlausnir nam því 28.069 milljónum króna. " Á árinu 2006 voru keypt hlutdeildarskírteini í fagfjárfestasjóðum Landsvaka hf. fyrir samtals 1.597 milljónir króna. Lykiltölur úr ársreikningi verðbréfasjóða, í þús. kr. Tölur í m.kr. Landsb. Global Equity Markaðs- bréf 1 Markaðs- bréf 2 Markaðs- bréf 3 Markaðs- bréf 4 Hreinar fjármunatekjur 1.681.981 160.528 82.157 278.644 392.234 Rekstrargjöld 89.459 19.791 9.301 56.050 59.044 Hagn. ársins færður á hlutdeildarskírteini 1.592.522 140.738 72.856 222.594 333.190 Hrein eign í árslok 6.632.693 953.553 273.454 3.649.309 5.268.897 Lykiltölur úr ársreikningi verðbréfasjóða, í þús. kr. (frh.) Tölur í m.kr. Reiðu-bréf Skulda-bréfasj. Sparibréf Vísitölubréf Samtals 2006 Hreinar fjármunatekjur 238.682 181.788 901.396 866.475 4.783.887 Rekstrargjöld 25.016 34.181 130.205 63.492 486.539 Hagn. ársins færður á hlutdeildarskírteini 213.667 147.607 771.191 802.983 4.297.348 Hrein eign í árslok 1.462.805 2.025.687 9.333.166 3.132.890 32.732.455 Lykiltölur úr ársreikningi fjárfestingarsjóða, í þús. kr. Tölur í m.kr. Fyrirtækja-bréf Úrvals-bréf Peningabréf ISK Landsb. Global Opportunity Safnbréf skuldabréf / hlutabréf Safnbréf innlend/ erlend Hreinar fjármunatekjur 2.754.130 1.399.430 8.896.287 87.588 16.569 28.537 Rekstrargjöld 339.137 146.308 498.536 36.795 5 58 Hagn. Ársins færður á hlutdeildarskírteini 2.414.994 1.253.122 8.397.751 50.793 16.563 28.479 Hrein eign í árslok 18.272.302 7.469.026 80.137.126 1.526.575 278.078 264.523 Tölur í m.kr. Landsbanki Diversified Yield Fund Peningabréf EUR Peningabréf USD Peningabréf GBP Samtals 2006 Hreinar fjármunatekjur 46.959 162.287 102.605 78.838 13.573.231 Rekstrargjöld 3.101 16.940 6.365 5.413 1.052.659 Hagn. ársins færður á hlutdeildarskírteini 43.858 145.347 96.240 73.425 12.520.572 Hrein eign í árslok 1.715.920 4.186.399 1.926.633 1.207.089 116.983.672 Lykiltölur úr ársreikningi fagfjárfestasjóða, í þús. kr. Tölur í m.kr. Landsbanki Mezzanine Fund Landsbanki Mezzanine Fund II Landsbanki Private Equity 1 Landsbanki Absolute Return Strategies Landsbanki Aquila Real Estate Fund Samtals 2006 Hreinar fjármunatekjur 195.891 2.456 417.481 22.245 0 638.073 Rekstrargjöld 22.266 4.869 29.714 1.539 134.699 193.087 Hagn. ársins færður á hlutdeildarskírteini 173.624 -2.414 387.767 20.707 -134.699 444.986 Hrein eign í árslok 705.624 309.404 4.240.381 1.146.633 -134.699 6.267.343 Horfur Rekstur verðbréfasjóða, fjárfestingarsjóða og fagfjárfestasjóða Landsvaka hf. er margþættur og rekstur sjóða háður þróun á þeim mörkuðum sem þær fjárfesta á. Í upphafi árs eru horfur ágætar á þeim mörkuðum, en ávöxtun sjóða er háð mörgum utanaðkomandi þáttum sem er vert að hafa í huga og skilyrði geta breyst skjótt. Nánari upplýsingar um ársreikning Landsvaka hf. veita Stefán H. Stefánsson, stjórnarformaður í síma 410 7151 og Sigurður Ó. Hákonarson framkvæmdastjóri í síma 410 7171.
Landsvaki - Ársuppgjör 2006
| Source: Iceland generic company