Atorka Group hf. hefur lokið við sölu á Icepharma hf. Kaupendur eru Kristján Jóhannsson stjórnarmaður í Icepharma, Margrét Guðmundsdóttir forstjóri Icepharma, og aðrir lykilstjórnendur félagsins. Kaupverð er trúnaðarmál. Salan hefur óveruleg áhrif á rekstur Atorku. Ráðgjafi seljanda var Fyrirtækjaráðgjöf Landsbanka Íslands og ráðgjafi kaupenda var Straumur-Burðarás.