- Vaxtaákvörðun


Samkvæmt 3.. mgr. 21.gr. laga um húsnæðismál  nr. 44/1998, með síðari
breytingum, og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004  um ÍLS-veðbréf og
íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðar vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón
af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum
fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi. 

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir því á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa
sem haldið var 26. apríl, ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna
ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboði íbúðabréfa og uppgreiddra ÍLS-veðbréfa er
4,21%.  Vaxtaálag vegna rekstrar er  0,25%, vegna varasjóðs 0,20% og vegna
uppgreiðsluáhættu 0,25%, samtals 0,70% 

Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánsvextir
íbúðalána sjóðsins lækki. 
 
Útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verða 4,65%, á lán með uppgreiðsluálagi, en
4,90% á lán án uppgreiðsluálags.

Recommended Reading