- Jarðboranir taka stefnumarkandi skref í stóraukinni útrás félagsins - hasla sér völl í öflun vistvænnar orku í Þýskalandi


Jarðboranir hf, hafa undirritað samning við þýska fyrirtækið Herrenknecht
Vertical GmbH um kaup og kauprétt á hátæknivæddum stórborum sem eru sérstaklega
hannaðir til að afla jarðhita á miklu dýpi. Heildarviðri samningsins er um 6
milljarðar króna. Kaupin eru fjármögnuð með eigin fé og lánsfé. Kaupin á
borunum er liður í stóraukinni útrás Jarðborana á erlenda markaði. Fyrirhugað
er að fyrstu verkefni nýju boranna verði í Suður- Þýskalandi fyrir lok þessa
árs. 

Vistvæn orka stöðugt eftirsóttari

Orka, sem aflað er með vistvænum hætti, verður stöðugt eftirsóttari. Mikil
vakning er nú í þróun á nýtingu umhverfisvænnar orku í Evrópu og þar beinist
athyglin æ meir að jarðhita. Jarðboranir búa yfir mikilli þekkingu á
jarðhitaborunum og hefur félagið alla burði til þess að verða leiðandi
fyrirtæki í heiminum á sviði jarðborana og jarðhitavinnslu. Félagið á í
viðræðum við nokkra aðila um verkefni og hefur orðið vart við mikla vakningu á
verkefnum í jarðhita í Mið-Evrópu og þá sérstaklega í Þýskalandi. 

Horft er til þess að aukin nýting jarðhita muni í framtíðinni stuðla að
hagvexti og atvinnumöguleikum í sátt við samfélagið, m.a. vegna krafna um að
draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Af þeim ástæðum eru framundan
fjölmörg áhugaverð verkefni sviði jarðhitanýtingar til orkuframleiðslu og hafa
Jarðboranir beint sjónum sínum m.a. sérstaklega að Þýskalandi. Samningurinn við
Herrenknecht Vertical gerir Jarðborunum kleift að sækja inn á þennan markað af
fullum krafti og flytja þannig út reynslu, þekkingu og hugvit sem félagið hefur
á að skipa. 

Borfloti Jarðborana stórefldur

Með kaupunum stóreflist borfloti Jarðborana og búa þeir yfir nær tvöfalt meiri
borgetu en öflugustu borar Jarðborana sem fyrir eru. Því er ljóst að tilkoma
þeirra markar tæknileg þáttaskil í starfsemi samstæðunnar. Um er að ræða nýja
kynslóð hátæknivæddra bora þar sem áhersla er lögð á aukna sjálfvirkni, aukin
afköst og meira öryggi starfsmanna. Áhersla er á að borarnir séu
umhverfisvænir, fyrirferðarlitlir og hljóðlátir og vinnu¬aðstaða sé eins og
best er á kosið. Nýju borarnir geta hver og einn lyft 350 tonna þyngd. Búið er
að ganga frá kaupum á fyrsta bornum og verður hann afhentur í haust. 

Magnús Jónsson forstjóri Atorku og stjórnarformaður Jarðborana
"Við lítum á þetta sem fyrsta skrefið í uppbyggingu Jarðboranna sem leiðandi
fyrirtækis í borframkvæmdum og tengdri starfsemi í jarðhita í Þýskalandi og
jafnframt upphafið að stóraukinni útrás félagsins á erlendri grundu" segir
Magnús Jónsson forstjóri Atorku og stjórnarformaður Jarðborana. 

Um Jarðboranir
Jarðboranir eru í eigu Renewable Energy Resources (RER), sem er dótturfyrirtæki
Atorku. RER sérhæfir sig í fjárfestingum í endurnýjanlegri orku. Jarðboranir
eru þekkingar- og hátæknifyrirtæki sem annast framkvæmdir á alþjóðlegum
vettvangi og felst starfsemin einkum í nýtingu auðlinda í jörð til framleiðslu
á  endurnýjanlegri orku. Jarðboranir eru jafnframt stærsta borfyrirtæki á
heimsvísu sem sérhæfir sig í jarðhita. Aðrar eignir Renewable Energy Resources
eru 22,1% í Romag sem er leiðandi framleiðandi á heimsvísu á sérhæfðum
glerlausnum sem nýta birtu til rafmangsframleiðslu og 16% eignarhlutur í Enex
sem starfar aðallega í þróunarverkefnum á sviði jarðvarma. 

Um Atorku
Atorka Group er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem er skráð í OMX Nordic
Exchange á Íslandi. Atorka fjárfestir í traustum fyrirtækjum sem eru í
atvinnugreinum sem hafa sérstök tækifæri til vaxtar á heimsmarkaði. Í
fjárfestingum sínum leggur Atorka áherslu á að rekstur fyrirtækjanna sé öflugur
með sterkt sjóðstreymi, sterkt stjórnendateymi, starfi við góð skilyrði til
verulegs innri og ytri vaxtar og hafi tækifæri til verðmætaaukningar. 

Nánari upplýsingar veitir Magnús Jónsson forstjóri Atorku síma 840 6240
GlobeNewswire