Á aðalfundum VBS fjárfestingarbanka hf. og FSP hf. sem haldnir voru í dag var samþykkt að sameina félögin undir nafni VBS fjárfestingarbanka hf. í samræmi við samrunaáætlun frá 9. mars 2007. Samruninn er háður samþykki Fjármálaeftirlitsins. Fram kom að samkvæmt drögum að rekstrarniðurstöðu sameinaðs félags á fyrstu þremur mánuðum ársins væri hagnaður fyrir skatta um 550 mkr. og greinist hann þannig í milljjónum króna: Hreinar vaxtatekjur 156 Tekjur af eignarhlutum 410 Þóknanatekjur og aðrar rekstrartekjur 147 Önnur rekstrargjöld -115 Framlag í afskriftareiknig útlána - 48 Hagnaður fyrir skatta 550 Ný stjórn er skipuð þeim Gísla Kjartanssyni sem jafnframt er formaður stjórnar, Gunnari Árnasyni, Símoni Sigurpálssyni, Páli Magnússyni og Þresti Leóssyni. Varamenn í stjórn eru Ólafur Elísson, Guðmundur Ingi Jónsson, Birgir Ómar Haraldsson, Jón Kristjánsson og Kristinn Ágúst Ingólfsson.
- Samþykkt að sameina VBS Fjárfestingarbanka og FSP undir nafni VBS Fjárfestingarbanka
| Source: VBS Fjárfestingarbanki hf.