Hluthafafundur haldinn 22. maí 2007 Leiðrétting: Frétt send 2007-05-23 11:38:30


Leiðrétting:  Íslensk þýðing.  Fyrirsögn í frétt á að vera hluthafafundur ekki
aðalfundur eins og var í fyrri frétt. 

Þriðjudaginn 22. maí 2007, kl. 18:00 síðdegis, er haldinn hluthafafundur í
Alfesca hf., á Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavik. 

Til fundarins eru mættir 6 hluthafar og umboðsmenn hluthafa sem ráða yfir
61.32% hluta í félaginu. 

Ólafur Ólafsson stjórnarformaður félagsins setti fundinn og lagði til að Jón
Ögmundsson verði kjörinn fundarstjóri. Tillagan samþykkt. 

Fundarstjóri lagði til að Antony Hovanessian verði kjörin fundarritari.
Tillagan samþykkt. 

Fundarstjóri upplýsti að til fundarins hefði verði boðað með auglýsingu í tveim
dagblöðum í samræmi við grein 4.4. í samþykktum félagsins og lýsti fundarstjóri
fundinn því lögmætan hluthafafund í Alfesca hf. 

Á dagskrá fundarins eru eftirgreind mál:

1. Tillaga um heimild til stjórnar að auka hlutafé félagsins um allt að kr.
300.000.000 að nafnverði, á genginu 4,83, til að félagið geti staðið við efndir
á áætlun um árangurstengdar launagreiðslur með tilheyrandi skilyrtum kauprétti
fyrir lykilstarfsmenn félagsins. Hluthafar falli frá forkaupsrétti að
hækkuninni ef reynir á hækkunarheimildina. 

2. Önnur mál löglega upp borin.

1.Tillaga um breytingu á samþykktum:

Fyrir fundinum lá eftirfarandi tillaga stjórnar um breytingu á samþykktum
félagsins. 

“Hluthafafundur í Alfesca hf. sem haldinn er þriðjudaginn 22. maí 2007
samþykkir að  heimila stjórn félagsins að auka hlutafé þess um allt að íkr.
300.000.000 -þrjúhundruðmilljónir 00/100- að nafnverði, á genginu 4,83, til að
félagið geti staðið við efndir á áætlun um árangurstengdar launagreiðslur með
tilheyrandi skilyrtum kauprétti fyrir lykilstarfsmenn félagsins. Hluthafar
falla frá forkaupsrétti að hækkuninni ef reynir á hækkunarheimildina.
Stjórninni er heimilt að nýta heimildina að hluta eða öllu leyti, í eitt eða
fleiri skipti, og skal heimildin standa í fimm ár frá samþykkt hennar. Nýjir
hlutir sem gefnir verða út á grundvelli heimildarinnar veita réttindi í
félaginu frá skráningu þeirra.” 


Fundarstjóri gaf Árna Tómassyni stjórnarmanni orðið um tillöguna.

Árni gerði grein fyrir samþykki stjórnarfunda þann 23 febrúar  og aftur  10 maí
s.l. á áætlun um árangurstengdar launagreiðslur með tilheyrandi kauprétti fyrir
lykilstarfsmenn félagsins á hlutum í félaginu að uppfylltum skilyrðum um
árangur þar sem bæði verður miðað við EBITDA markmið og gengi hlutabréf Alfesca
á tilteknu tímabili. Hinar árangurstengdu launagreiðslur næðu til hluta í
Alfesca allt að ISK 300.000.000 að nafnverði á genginu 4,83 með fyrirvara um að
hluthafafundur veitti stjórn þær heimildir sem í tillögunni felast til útgáfu á
nýju hlutafé til þess að hægt yrði að standa við ákvæði áætlunarinnar, reyndi á
skilyrtan kauprétt lykilstarfsmanna. 

Að umræðum loknum var tillaga breytingu á samþykktum borin undir atkvæði
hluthafa félagsins og var tillagan samþykkt af fulltrúum allra hluthafa sem
farið var með atkvæði fyrir á fundinum. 


2. Önnur mál.

Enginn tók til máls undir þessum lið.


Fundarstjóri óskaði eftir heimild fundarins til að fela fundarstjóra og 
fundarritara að ganga frá fundargerð. Tillagan samþykkt. 

Fundi var slitið kl. 18:30.
GlobeNewswire