Lykiltölur, samstæðureikningur : • Hagnaður fyrsta ársfjórðungs í samstæðureikningum Atorku Group hf., var 459 milljónir króna. • Tekjur fyrsta ársfjórðungs voru 20,1 milljarðar króna. • Heildareignir samstæðunnar í lok ársfjórðungsins voru 100,5 milljarðar. • Eigið fé var 10,3 milljarðar í lok ársfjórðungsins. • EBITDA félaga í orku- og verktakaiðnaði þ.m.t. Jarðboranir á fyrsta ársfjórðungi var 392 milljónir króna sem er aukning um 31% frá sama tímabili í fyrra. • EBITDA félaga í plastiðnaði þ.m.t. Promens á fyrsta ársfjórðungi var 1.726 milljónir króna. Lykiltölur móðurfélags: • Hagnaður eftir skatt á tímabilinu var 3 milljarðar króna • Heildareignir voru 51,1 milljarðar króna í lok mars • Eigið fé í lok tímabilsins var 18,5 milljarðar króna • Arðsemi eigin fjár nam 70% á ársgrundvelli • Eiginfjárhlutfall er 36% • Hagnaður á hlut á tímabilinu nam 0,96 Helstu atburðir á fyrsta ársfjórðungi: • Promens lýkur við endurfjármögnun á dótturfyrirtæki sínu Polimoon með sambankaláni frá DnB NOR, Nordea og LBNord. Fjármögnunin tryggir einnig að félagið geti haldið áfram að vaxa með frekari kaupum á fyrirtækjum. • Atorka eykur við hlut sinn í InterBulk í 40% í tengslum við hlutafjáraukningu og kaup InterBulk á UTI sem er leiðandi í Evrópu á sérhæfðum gámaflutningum, einkum fyrir efnaiðnað. • Atorka kaupir um 30% hlut í Clyde Process Solution (CPS). Með kaupunum styður Atorka félagið til að kaupa MAC sem er leiðandi fyrirtæki í Norður-Ameríku í framleiðslu á háþróuðum búnaði fyrir framleiðsluferli. • Eignarhluturinn í Romag var seldur til Renewable Energy Recources (RER) og jafnframt jók RER við eignarhlutinn á ársfjórðungnum og á nú um 22% hluti í Romag. Renewable Energy Resources er í eigu Atorku Group og sérhæfir sig í fjárfestingum í endurnýjanlegri orku. • Atorka ákveður að selja fyrirtæki á heilbrigðismarkaði Nýlegir atburðir Jarðboranir taka stefnumarkandi skref í stóraukinni útrás félagsins með kaupum á 3 hátæknivæddum stórborum fyrir um 6 milljarða króna. Með kaupunum stóreflist borfloti Jarðborana og búa þeir yfir nær tvöfalt meiri borgetu en öflugustu borar Jarðborana sem fyrir eru. Því er ljóst að tilkoma þeirra markar tæknileg þáttaskil í starfsemi samstæðunnar. Atorka hefur verið að auka eignarhlut sinn í Amiad filtration og á nú rúmlega 19% eignarhlut í félaginu. Amiad Filtration er leiðandi á alþjóðamarkaði í framleiðslu á vatnshreinsibúnaði. Mikill vöxtur er á þessum markaði og er vaxandi eftirspurn eftir hreinu vatni. Amiad er skráð á AIM markaðinn í London. Gengið hefur verið frá sölu á Icepharma og Parlogis. Magnús Jónsson, forstjóri segir: ,,Árið byrjar mjög vel hjá okkur og Atorka er að þróast í þá átt sem við höfum verið að leggja áherslu á undanfarin misseri. Breytt áhersla í fjárfestingum er farin að sýna árangur og hafa fjárfestingarverkefni félagsins gengið vel. Mikill vöxtur er fyrirséður hjá Jarðborunum og í júní kemur nýr bor til landsins sem mun koma inn í rekstur félagsins á seinni hluta ársins. Rekstur Promens hefur farið vel af stað og áhersla lögð á samþættingu innan félagsins til þess að byggja grunn að enn frekari vexti. Atorka á nú orðið fulltrúa í stjórnum InterBulk og Clyde Process Solutions og mun koma með virkum hætti að frekari vexti þeirra félaga.” Frekari upplýsingar veita: Magnús Jónsson, forstjóri s. 840 6240 Valdís Arnardóttir, kynningarstjóri s. 840 6217 Reikninga Atorku Group má finna á heimasíðu félagsins www.atorka.is Um Atorku Group hf. Atorka er fjárfestingarfélag sem styður framsækin fyrirtæki, sem njóta góðs af hnattrænni þróun, til leiðandi hlutverks á heimsvísu. Í fjárfestingum sínum leggur Atorka áherslu á að rekstur fyrirtækjanna sé öflugur og hafi sterkt stjórnendateymi og að fyrirtækið starfi við góð skilyrði til verulegs innri og ytri vaxtar. Gert er ráð fyrir að tímalengd verkefnanna sé um 3-5 ár og að mikil tækifæri séu til vaxtar og verðmætaaukningar.