OMX Nordic Exchange á Íslandi hefur samþykkt að Mangold Fonkommission AB verði
viðurkenndur ráðgjafi (þ.e. Certified Adviser, CA) á First North Iceland.
Mangold Fonkommission er fyrsti erlendi ráðgjafinn til að fá þetta hlutverk á
íslenska markaðnum. Hlutverk CA felst í að vera félagi til ráðgjafar og
aðstoðar þegar skráningarferlið stendur yfir og vera ráðgjafi og milliliður í
samskiptum við markaðinn meðan bréf félags eru til viðskipta á markaðnum. CA
fyrirkomulagið er hannað til að byggja traustan markað því það er á ábyrgð CA
að fylgjast með því að félög uppfylli ávallt þær aðgangskröfur og
upplýsingaskyldur sem gilda á First North.
Til að gerast Certified Adviser á First North þurfa fyrirtæki að uppfylla
ákveðin skilyrði. Þau helstu eru að CA þarf að:
- vera lögaðili
- hafa nægilega marga starfsmenn
- tryggja að starfsmenn Certified Adviser séu hæfir og búi yfir nægilegri
reynslu í fjármálaþjónustu við fyrirtæki
- setja innri reglur um viðskipti með hluti í félögum sem þiggur þjónustu
Certified Adviser
- hafa verklag og vinnureglur um skráningu gagna og geymslu upplýsinga
Mangold Fonkommission er einnig Certified Adviser á First North Stockholm og
þjónar þar 22 fyrirtækjum.
First North á Íslandi býður Mangold Fonkommission velkomið til starfa sem
Certified Adviser.
- Mangold Fonkommission verður viðurkenndur ráðgjafi (CA) á First North
| Source: First North Iceland