Yfirtökutilboð Novator eignarhaldsfélags ehf. til hluthafa Actavis Group hf. rann út kl. 16:00 miðvikudaginn 18. júlí 2007. Þau skilyrði sem Novator eignarhaldsfélag ehf. setti fram í yfirtökutilboði sínu hafa verið uppfyllt og er tilboðið hér með lýst óskilyrt af hálfu tilboðsgjafa. Að loknum tilboðsfresti hefur Novator tryggt sér hlutafé sem nemur kr. 1.895.316.722 að nafnverði eða 99,66% af heildarhlutafé Actavis Group hf., að meðtöldum hlutum í eigu tilboðsgjafa og tengdra félaga sem og eigin hlutum félagsins. Hluthafar sem samþykktu tilboðið fá greitt með reiðufé samkvæmt tilboðinu og fer greiðsla fram miðvikudaginn 25. júlí 2007.