Vegna tilkynningar í fréttakerfi OMX Norrænu kauphallarinnar Íslandi 20. júlí sl. um framlengingu á tilboði Stillu eignarhaldsfélags ehf. hefur stjórn Eyjamanna ehf. ákveðið að framlengja gildistíma yfirtökutilboðs Eyjamanna ehf. til samræmis við hinn nýja gildistíma samkeppnistilboðsins. Gildistíma yfirtökutilboðs Eyjamanna lýkur því kl. 16:00 mánudaginn 20. ágúst nk. Nánari upplýsingar: Sigurgeir B. Kristgeirsson sími 897 9607
- Framlenging yfirtökutilboðs Eyjamanna ehf. í Vinnslustöðinni hf.
| Source: Vinnslustöðin hf.