EBITDA samstæðunnar er 535 mkr eða 12,4%. Stjórn Kögunar ehf. (ICEX: KOGN) samþykkti á fundi þann 30. júlí ársreikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2007. Reikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess, Skýrr ehf., EJS ehf og Eskil ehf. Helstu atriði: • Rekstrartekjur jukust um 1.077 mkr. eða 33% frá sama tímabili 2006. EJS hf. bætist við samstæðuna þann 1. mars 2006. • EBITDA af áframhaldandi starfsemi er 535 mkr. eykst um 22% frá sama tímabili í fyrra. • Framlegð jókst um 112 mkr eða 12% frá sama tímabili árið 2006 og var nokkuð umfram áætlanir. • Hagnaður nýrrar samstæðu fyrir skatta er 1.080 mkr, hagnaður eftir skatta er 876 mkr. • Í ofangreindum samanburði hefur verið tekið tillit til aflagðrar starfsemi í kjölfar breytinga á samstæðu Kögunar í árslok 2006. Nánari upplýsingar um uppgjörið veita: Bjarni Birgisson, forstjóri sími 898-2006 Jóhann Þór Jónsson, fjármálastjóri sími 861-7221
2007
| Source: Kögun hf.