- Atorka innleysir 11 milljarða króna hagnað með sölu Jarðborana til Geysir Green Energy


-Atorka gerist kjölfestufjárfestir í Geysir með kaupum á 32% hlut í félaginu
Atorka hefur gengið frá sölu á öllum eignarhlut sínum í Jarðborunum, ásamt 16%
hlut í Enex til Geysir Green Energy í gegnum félag sitt Renewable Energy
Resources. Samhliða sölunni kaupir Atorka 32% hlut í Geysi og verður með því
kjölfestufjárfestir í félaginu. Heildarvirði (Enterprice Value) sölunnar eru
17,7 milljarðar króna og innleystur hagnaður Atorku frá upphafi
fjárfestingarinnar er yfir 11 milljarðar króna fyrir reiknaða skatta. Áhrif á
móðurfélagsreikning á öðrum ársfjórðungi er á fjórða milljarð króna. Áhrif á
samstæðureikninga á þriðja ársfjórðungi er um 5 milljarðar króna. Kaupverð
Atorku í Geysi Green Energy eru rúmir 7 milljarðar króna. 

Undir forystu Atorku hafa Jarðboranir vaxið og eflst verulega og er þessi sala
til vitnis um árangursríka framkvæmd á fjárfestingarstefnu félagsins. Velta
Jarðborana hefur fimmfaldast á fimm árum eingöngu með innri vexti.
Verkefnastaða Jarðborana hefur aldrei verið betri, áætluð velta Jarðborana á
árinu 2007 er um 6,5 milljarðar króna og 8 milljarðar króna á árinu 2008.
Heildarvirði (e. Enterprice Value) er um ellefu sinnum af áætlaðri EBITDU
ársins 2007 og rúmlega 9 sinnum af áætlaðri EBITDU 2008. Atorka mun áfram
fjárfesta í verkefnum í nýtingu jarðvarma með þátttöku sinni sem
kjölfestufjárfestir í Geysi. Jarðboranir hafa verið að hasla sér völl erlendis
og hafa nýlega keypt og tryggt sér kauprétt að þremur öflugum hátækniborum sem
ætlað er að nýta í útrás félagsins. Nýju borarnir eru sérstaklega hannaðir til
að afla jarðhita á miklu dýpi og styrkja enn frekar samkeppnisstöðu félagsins.
Thor Novig, fyrrverandi framkvæmdastjóri þýska borfyrirtækisins Itag Tiefbohr
GmbH,  hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá nýju dótturfélagi Jarðborana í
Þýskalandi, Hekla Energy GmbH. Fyrirhugað er að fyrstu borframkvæmdir á vegum
Hekla Energy hefjist í Suður-Þýskalandi síðar á þessu ári. 

Magnús Jónsson forstjóri Atorku; 
„Með þessari sölu er Atorka að innleysa verulegan hagnað og skapa svigrúm til
nýrra fjárfestinga. Fjárhagsstaða félagsins er sterk og aukum við
fjárfestingargetu okkar með þessari sölu. Ljóst er að uppbygging Jarðboranna
undir forystu Atorku hefur gengið afar vel og munum við áfram verða
kjölfestuhluthafar í félaginu í gegnum Geysi.  Við teljum Geysi vera spennandi
fjárfestingarkost og mikil tækifæri í að skapa veruleg verðmæti með þátttöku í
uppbyggingu á því félagi.“ 

Um Atorku
Atorka Group er fjárfestingarfélag sem er skráð í OMX Nordic Exchange á
Íslandi. Atorka fjárfestir í traustum fyrirtækjum sem eru í atvinnugreinum sem
hafa sérstök tækifæri til vaxtar á heimsmarkaði. Í fjárfestingum sínum leggur
Atorka áherslu á að rekstur fyrirtækjanna sé öflugur með sterkt sjóðstreymi,
sterkt stjórnendateymi, starfi við góð skilyrði til verulegs innri og ytri
vaxtar og hafi tækifæri til verðmætaaukningar. 

Nánari upplýsingar veitir Magnús Jónsson forstjóri Atorku í síma 840 6240 og
Valdís Arnardóttir kynningarstjóri Atorku í síma 840 6217 
GlobeNewswire