Atorka Group hefur ráðið Arnar Má Jóhannesson sem framkvæmdastjóra fjármálasviðs en hann hefur starfað sem sérfræðingur í fjárfestingarverkefnum Atorku. Arnar er löggiltur endurskoðandi og hefur reynslu af störfum sem endurskoðandi auk þess að hafa komið að ýmsum fyrirtækja- og fjárfestingaverkefnum.