Þann 31. ágúst 2007 var stjórnarfundur í Verðbréfunar hf. haldinn að Austurstræti 11, 101 Reykjavík, þar sem árshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2007 var samþykktur. Sjá lykiltölur í viðhengi. Umfjöllun um árshlutareikninginn og ákvarðanir stjórnar Stjórn samþykkti árshlutareikning Verðbréfunar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2007 á fundum sínum í dag. Starfsemin hjá Verðbréfun hf. hefur verið í lágmarki fyrri hluta árs 2007. Fasteignamarkaður hefur verið að leita í jafnvægi og hefur dregið úr uppgreiðslu á lánum Verðbréfunar hf. Lánasafn Verðbréfunar hefur þó dregist saman um tæp 3% frá áramótum. Úrdráttur skuldabréfa Verðbréfunar hf hefur verið aðlagaður til að halda jafnvægi milli eigna og skulda Verðbréfunar hf. Áætlanir seinni hluta ársins gera ráð fyrir óbreyttum rekstri. Rekstrartap Verðbréfunar hf. vegna fyrri hluta ársins 2007 endaði í rúmum 1,6 millj. króna tap fyrir skatta og/eða 1,3 millj. króna tap eftir útreikning tekjuskatta. Verðbréfun færir upp skattinneign vegna eignar á yfirfæranlegu tapi þar það telur að skattinneignin muni nýtast félaginu til framtíðar. Árshlutareikningur Verðbréfunar hf. er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) en félagið tók staðlana upp í ársbyrjun 2007. Heildaráhrif upptöku alþjóðlegu reikningsskilastaðlana (IFRS) á eigið fé félagsins í ársbyrjun 2007 er að bókfært eigið fé hækkar um 8.5 millj. eða úr kr. 2.3 millj. í kr. 10.8 millj. Nánar er gerð grein fyrir þessum breytingum í skýringum í árshlutareikningnum. Heildareignir félagsins lækkuðu um 28 miljónir króna á milli tímabila. Eigið fé félagsins lækkaði á sama tíma um 1,3 milljónir króna frá því um áramót. Framtíðarhorfur. Framtíðarhorfur á íbúðalánamarkaði munu skýrast þegar fram í sækir en starfssemi Verðbréfunar hf. fer talsvert eftir því hversu mikið jafnvægi skapast á skuldabréfamarkaði. Gert er ráð fyrir óbreyttum rekstri á komandi ári. Upplýsingar um ársreikning Verðbréfunar gefur Pétur Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Verðbréfunar í síma 820-6381
2007
| Source: Verðbréfun hf.