Leiðrétting. Eiginfjárþáttur A er 29,2% (var tilkynnt 29,0%) og CAD - eigið fé er 13,1% (var tilkynnt 13,6%). Ekki eru aðrar breytingar á tilkynningunni. Hagnaður samstæðu SPRON 10,1 milljarður króna eftir skatta Arðsemi eigin fjár 64% á ársgrundvelli Yfirlit fyrstu sex mánuði ársins 2007 • Hagnaður af rekstri SPRON samstæðunnar eftir skatta var 10.129 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins og jókst um 286% frá sama tímabili árið 2006. • Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 63,8% á ársgrundvelli. • Hreinar rekstrartekjur námu alls 14.974 milljónir króna sem er 192% aukning frá sama tímabili árið 2006. • Vaxtamunur sparisjóðsins er 1,1%. • Niðurstaða efnahagsreiknings var 208.582 milljónir króna í lok júní 2007 og hafa heildareignir hækkað um 13,0% frá áramótum. • Heildarútlán til viðskiptamanna SPRON námu 138.237 milljónum króna í lok júní og hækkuðu um 7,7% frá áramótum. • Heildarinnlán SPRON námu alls 66.635 milljónir króna og hækkuðu um 17,7% frá áramótum. Innlán sem hlutfall af útlánum til viðskiptamanna námu 48% í lok tímabilsins. • Eigið fé í lok júní nam 35.955 milljónum króna. • Eiginfjárhlutfall (CAD) SPRON samstæðunnar í lok tímabilsins var 13,1%. Lágmarkshlutfall samkvæmt lögum er 8,0%. Eiginfjárþáttur A er 29,2%. • Fjármögnun SPRON hefur gengið vel og á tímabilinu var tekið sambankalán að upphæð 200 milljónir evra. • Stofnfjáreigendur samþykktu, á fundi stofnfjáreigenda þann 21. ágúst sl., tillögu stjórnar SPRON um að breyta sparisjóðnum í hlutafélag. Í framhaldinu hefur verið leitað eftir samþykki Fjármálaeftirlitsins en skv. lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 ber að leita eftir samþykki þess þegar sparisjóði er breytt í hlutafélag. Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri: „Afkoma SPRON er sterk á fyrri hluta ársins og er hagnaður eftir skatta 10,1 milljarðar króna sem er besta afkoma SPRON á einum árshelmingi frá upphafi. Arðsemi eigin fjár er 63,8% sem er umfram væntingar okkar. Töluverð innlánaaukning var á tímabilinu og jukust innlán um 17,7% á meðan útlán jukust um tæp 8%. Hlutdeildarfélög og fjárfestingar SPRON skiluðu góðri arðsemi á tímabilinu og sjáum við mikinn vöxt í þeim hluta starfseminnar. Stofnfjáreigendur samþykktu á tímabilinu að breyta SPRON í hlutafélag og hefur verið leitað eftir samþykki Fjármálaeftirlitsins í kjölfarið. Gangi það eftir verður óskað eftir skráningu í kauphöll og er ljóst að SPRON mun skipa sér þar á meðal öflugustu fyrirtækja landsins. Rekstrarhorfur félaga í samstæðu SPRON á árinu eru jákvæðar og allar forsendur til þess að rekstur SPRON haldi áfram að dafna.” Frekari upplýsingar veitir: Guðmundur Hauksson Sparissjóðsstjóri Sími: 550 1200.
2007 - Leiðrétting - Frétt send út 2007-08-31 18:26:47 CET
| Source: SPRON