Leiðrétting. Lýtur að því að samtals var samþykkt tilboð af hálfu eigenda 175.757.286 hluta í Keops A/S í stað eigenda 176.053.918 hluta eins og áður send tilkynning bar með sér. Þann 3. september síðastliðinn tilkynnti Fasteignafélagið Stoðir hf. (Stoðir) niðurstöðu hins valfrjálsa skilyrta tilboðs í alla hluti félagsins Keops A/S. Stoðir tilkynntu að félagið hefði móttekið samþykki eigenda 176.053.018 hluta í Keops A/S, sem hver er að nafnvirði DKK 1, og samsvarar 96,72% allra hluta og atkvæðisréttar í Keops A/S (að meðtöldum eigin hlutum Keops og kaupréttum). Vegna villu sem upp kom við útreikninga hjá vörsluaðilum, er hið rétta að samtals samþykktu tilboðið eigendur að 175.757.286 hlutum í Keops A/S, sem hver er að nafnvirði DKK 1, og samsvarar það 96,56% allra hluta og atkvæðisréttar í Keops A/S (að meðtöldum eigin hlutum Keops og kaupréttum). Glitnir banki hf. hefur nú, fyrir hönd Stoða, lokið við að greiða allt endurgjald fyrir hlutina til vörsluaðila hluthafa Keops A/S, en peningagreiðsla var innt af hendi fyrir samtals 52.827.368 hluti (30,1%) og hlutir í Stoðum, samtals að nafnvirði ISK 2.364.195.016, voru afhentir fyrir samtals 122.929.918 hluti (69,9%) í Keops A/S. Fasteignafélagið Stoðir hf. Nánari upplýsingar veitir: Skarphéðinn B. Steinarsson, forstjóri Símanúmer: +354-660-0063 Fasteignafélagið Stoðir hf. Kringlunni 4-12 103 Reykjavík Ísland
- Leiðrétting - Niðurstöður hins valfrjálsa skilyrta tilboðs í alla hluti félagsins KEOPS A/S - Frétt send út 2007-09-03 12:13:04 CET
| Source: Landic Property hf.