Aðalfundur Alfesca hf. verður haldinn á Hótel Nordica í Reykjavík, mánudaginn
24. september 2007 og hefst klukkan 16.30.
Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
2. Ársreikningar félagsins fyrir síðastliðið starfsár,ásamt athugasemdum
endurskoðenda.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar síðastliðins reikningsárs.
4. Kosning endurskoðenda.
5. Kjör stjórnar til eins árs.
6. Ákvörðun stjórnarlauna.
7. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
8. Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.
9. Tillaga um breytingar á samþykktum:
Tillaga um að stjórn félagsins fái heimild til að skrá hlutafé félagsins í
Evrum. Lagt er til að við umreikning verði miðað við kaupgengið EUR/ISK
87,0414134, og fylgir þá eitt atkvæði hverri Evru í stað hverju Evru senti
í hlutafé.
Tillaga um að stjórn félagsins fái heimild til að hækka hlutafé félagsins
um allt að 850.000.000,00 að nafnverði með útgáfu 850.000.000 nýrra hluta.
Kaupgengi hlutanna og söluskilmálar hlutanna skulu vera nánar ákveðnir af
stjórn félagsins. Hluthafar falla frá forgangsrétti sínum til áskriftar að
þessum nýju hlutum. Heimildin gildir til 01.09.2012 að því marki sem hún
hefur ekki verið nýtt fyrir þann dag.
Tillaga um að stjórn félagsins fái heimilt að hækka hlutafé félagsins um
allt að 850.000.000,00 að nafnverði með útgáfu 850.000.000 nýrra hluta.
Kaupgengi hlutanna og söluskilmálar hlutanna skulu vera nánar ákveðnir af
stjórn félagsins. Núverandi hluthöfum skal vera heimilt að nýta
forgangsrétt sinn við skráningu fyrir nýjum hlutum. Heimildin gildir til
01.09.2012 að því marki sem hún hefur ekki verið nýtt fyrir þann dag.
Félagið hefur flutt lögheimili sitt frá Fornbúðum 5 í Hús verslunarinnar,
Kringlunni 7, 103 Reykjavík. Lagt er til að samþykktum félagsins sé
breyttar til samræmis.
Lagt er til að hluthöfum verði heimilað að taka þátt í hluthafafundum
rafrænt og þeim heimilað að greiða atkvæði á hluthafafundum án þess að vera
viðstaddir fundinn í eigin persónu.
Lagt er til að skylt verði að upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar
félagsins verði aðgengilegar á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur
sólarhringum fyrir hluthafafund.
Lagt er til að samþykktum félagsins verði breytt þannig að gert verði
skylt að dagskrá aðalfundar innihaldi tillögu stjórnar um
starfskjarastefnu. Í síðasta lagi einni viku fyrir aðalfund skal
starfskjarastefnan vera aðgengileg til skoðunar á skrifstofu félagsins.
10. Önnur mál
Fundarstörf fara fram á ensku.
Til þess að tillögur frá hluthöfum sem bera á undir fundinn verði teknar
til umræðu á fundinum verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi
síðar en sjö dögum fyrir fundinn.
Dagskrá fundarins, ársreikningur og endanlegar tillögur skulu vera
aðgengilegar hluthöfum á skrifstofum félagsins að Kringlunni 7, 103
Reykjavík, sjö dögum fyrir fundinn.
Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað sem og á
skrifstofu félagsins einum sólarhring fyrir fundinn.
Stjórn Alfesca hf.