Stjórn HB Granda hf. hefur ákveðið að falla frá fyrirætlunum um að reisa á Akranesi nýtt fiskiðjuver, sem skyldi verða tilbúið árið 2009, enda hafa Faxaflóahafnir sf. ekki talið sér fært að uppfylla óskir félagsins, m.a. um gerð nýrrar fiskihafnar á Akranesi.