- Atorka kaupir 20% hlut í Shanghai Century


Atorka hefur eignast um 20% hlut í Shanghai Century Acquistion Corp (SHA) sem
er skráð á AMEX markaðnum í New York. Heildarverð kaupanna er um 2 milljarðar
króna og hafa kaupin átt sér stað á undanförnum vikum. Atorka fjármagnar kaupin
með handbæru fé. SHA er félag sem er stofnað sérstaklega í þeim tilgangi að
sameinast öðru félagi (e. Special Purpose Acquistion Corporation, SPAC) og
hefur það samið um kaup á kínverska lyfjafyrirtækinu Sichuan Kelun
Pharmceutical (Kelun) með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda í Kína og
er það ferli í hefðbundnum farvegi. Kelun er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu
og dreifingu á vökva í æð (IV solutions) í Kína. Fyrirtækið rekur 13
verksmiðjur í Kína, starfrækir þar 53 söluskrifstofur og er með með um 6.800
starfsmenn. Kelun framleiðir um 90 tegundir af vökvum og er
heildarframleiðslugeta félagsins um 1.4 milljarðar skammta á ári. Félagið er
einnig í framleiðslu á stungulyfjum og lausasölulyfjum (OTC). Fyrirséður er
mikill vöxtur í heilbrigðisgeiranum í Kína á næstu árum og er Kelun með sterka
stöðu til að taka þátt í þeim vexti. Atorka hefur einnig á undanförnum mánuðum
keypt kauprétti í félaginu (e. warrants) sem eru nýtanlegir þegar kaupin á
Kelun eru gengin í gegn. 

Um Atorku
Atorka Group er fjárfestingarfélag sem er skráð í OMX Nordic Exchange á
Íslandi. Atorka fjárfestir í traustum fyrirtækjum sem eru í atvinnugreinum sem
hafa sérstök tækifæri til vaxtar á heimsmarkaði. Í fjárfestingum sínum leggur
Atorka áherslu á að rekstur fyrirtækjanna sé öflugur með sterkt sjóðstreymi,
sterkt stjórnendateymi, starfi við góð skilyrði til verulegs innri og ytri
vaxtar og hafi tækifæri til verðmætaaukningar. 

Nánari upplýsingar veitir Magnús Jónsson forstjóri Atorku í síma 840 6240 og
Valdís Arnardóttir kynningarstjóri 840 6217
GlobeNewswire