- Promens kaupir rekstur á Spáni


Promens hefur í dag yfirtekið framleiðslueiningu spánska fyrirtækisins STE
Packaging Development á snyrtivöruumbúðum. Fyrirtækið er staðsett í
Esparraguera, nálægt Barcelona á Spáni.  Fyrirtækið, sem er með árlega sölu upp
á 3.8 milljónir evra (332 milljónir króna) og 33 starfsmenn, sérhæfir sig í
þróun, framleiðslu og dreifingu á sérhæfðum snyrtivöruumbúðum og íhlutum fyrir
þær. Vörur fyrirtækisins falla vel að núverandi vöruflóru hjá Promens.
Kaupverðið er trúnaðarmál og eru kaupin fjármögnuð með handbæru fé. Hið nýja
fyrirtæki mun verða hluti af Suður-Evrópudeild Umbúðasviðs Promens. 

“Yfirtaka STE fellur vel að stefnumótun okkar um vöxt innan mikilvægra geira í
neytendaumbúðum, í þessu tilfelli snyrtivara, jafnframt því að skapa frekari
fótfestu á Spáni til að auka viðskipti okkar við núverandi og nýja
viðskiptavini, en meðal þeirra eru mörg heimsþekkt vörumerki innan
snyrtivörugeirans.” segir Ragnhildur Geirsdóttir forstjóri Promens. 

Um Promens hf.

Promens er leiðandi fyrirtæki í plastiðnaði með 64 verksmiðjur í 22 löndum og
6.000 starfsmenn. Fyrirtækið framleiðir mikið úrval umbúða þ.m.t. neytenda-,
efna-, lyfja- og matvælaumbúðir auk þess að framleiða plastíhluti fyrir bíla-,
vinnuvéla- og rafeindaiðnaðinn. Stærstu eigendur Promens eru
fjárfestingafélagið Atorka Group hf. og Landsbankinn. Nánari upplýsingar um
Promens má finna á www.promens.com 

Um Atorku Group hf.
Atorka Group er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem er skráð í OMX Nordic
Exchange á Íslandi. Atorka fjárfestir í traustum fyrirtækjum sem eru í
atvinnugreinum sem hafa sérstök tækifæri til vaxtar á heimsmarkaði. Í
fjárfestingum sínum leggur Atorka áherslu á að rekstur fyrirtækjanna sé öflugur
með sterkt sjóðstreymi, sterkt stjórnendateymi, starfi við góð skilyrði til
verulegs innri og ytri vaxtar og hafi tækifæri til verðmætaaukningar. Nánari
upplýsingar um Atorku má finna á www.atorka.com 

Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Geirsdóttir forstjóri Promens
Sími: 580-5550, GSM: 898-5001
GlobeNewswire