- Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy sameinast


-	Leiðandi félag á heimsvísu á sviði jarðvarma - 

Stjórnir Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy hafa ákveðið að snúa
bökum saman og  undirritað samkomulag um sameiningu félaganna undir merkjum
hins fyrrnefnda. Við sameininguna verður til leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í
fjárfestingum og þróun á sviði jarðvarma. Sameinað fyrirtæki hyggst nýta
íslenska þekkingu í framrás sinni víða um heim á sviði endurnýjanlegra
orkugjafa. Heildarverðmæti félagsins eftir sameiningu nemur um 65 milljörðum
króna. Samningar aðila eru háðir ákveðnum skilyrðum, m.a. er varðar afstöðu
samkeppnisyfirvalda. 

Magnús Jónsson, forstjóri Atorku og Varaformaður Geysis Green Energy;
„Við erum að sameina krafta okkar til sóknar á erlenda markaði og teljum þetta
vera gott skref í uppbyggingu á útrás Íslendinga á sviði jarðvarma. Þetta er
jákvætt fyrir hluthafa Geysis Green Energy og Reykjavík Investment og mun
sameiningin stuðla að verðmætaaukningu fyrir hluthafa beggja félaga. Atorka
hefur verið leiðandi í fjárfestingum í íslenskum orkuiðnaði með framsýni sinni
í fjárfestingu í Jarðborunum og öðrum félögum í endurnýjanlegri orku og sjáum
við fram á mikil tækifæri í vexti sameinaðs félags í framtíðinni.“ 

Sameinaðir kraftar til sóknar á erlenda markaði

Með sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy verður til eitt
öflugasta fyrirtæki heims á sviði jarðvarma, bæði í rafmagnsframleiðslu og
hitaveitna. Félögin hafa lagt áherslu á uppbyggingu viðskiptasambanda og
fjárfestinga erlendis og eftir sameiningu eru mörg leiðandi fyrirtæki á sviði
jarðvarma innan vébanda félagsins: 

-   100% eignarhlutur í Jarðborunum, einu fremsta fyrirtæki veraldar í nýtingu
    jarðvarma og borana, sem var áður í eigu Geysis Green Energy. 
-   48% eignarhlutur í Hitaveitu Suðurnesja, sem er samanlagður hlutur beggja
    félaganna. 
-   70% eignarhlutur í Enex, sem vinnur að þróun jarðvarmaverkefna víðsvegar um
    heiminn, sem er samanlagður hlutur beggja aðila. 
-   66% eignarhlutur í Enex Kína sem vinnur að þróun hitaveitna í Kína. 
-   20% eignarhlutur í Western GeoPower í Kanada sem vinnur að þróun tveggja   
    jarðvarmavirkjana í Bandaríkjunum. Þessi hlutur var áður í eigu Geysis Green
    Energy. 
-   46% hlutur í Exorku International, sem vinnur að byggingu jarðvarmaorkuvera
    sem nýta svo kallaða Kalina-tækni til raforkuvinnslu.  Þessi hlutur var
    áður í eigu Geysis Green Energy. 

Til þessa hafa félögin verið í góðu samstarfi erlendis og með sameiningu mun
bæði skapast aukinn slagkraftur og frekari sóknarfæri  í Evrópu, Ameríku og
Asíu. Áfram verður unnið náið með Orkuveitu Reykjavíkur í erlendum verkefnum
félagsins. Samkomulag er á milli aðila um að einkaleyfisbundin starfsemi
Hitaveitu Suðurnesja (veitukerfi sveitarfélaga) verði í meirihlutaeigu
Reykjanesbæjar. 

Öflugt alþjóðlegt félag með skýr markmið 
Eftir sameiningu félaganna verður heildarhlutafé rúmir 40 milljarðar króna og
helstu eigendur verða: 

-	Orkuveita Reykjavíkur 35,5%
-	FL Group, 27%
-	Atorka Group 20%
-	Gitnir banki 6,2%

Sameinað félag verður vel í stakk búið til að mæta erlendri samkeppni og skipa
sér í fremstu röð á sínu sviði og er verkefnastaða sameinaðs félags og tengdra
félaga góð. Fyrirsjáanleg eru verkefni um byggingu og kaup um 700 megawatta
raforkuvinnslu sem ná m.a. til Bandaríkjanna, Filippseyja, Grikklands,
Indónesíu, Þýskalands og Eþíópíu. Framtíðarmarkmið félagsins er að framleiða
3-4.000 megavött fyrir lok árs 2009. 

Glitnir er ráðgjafi Geysis Green Energy í sameiningarferlinu. 

Um félögin
Reykjavik Energy Invest (REI) er fjárfestingararmur Orkuveitu Reykjavíkur á
alþjóðavettvangi. REI er stofnað í mars 2007 og er í 93% eigu Orkuveitunnar.
REI er fjölþjóðlegt fjárfestingafélag sem einbeitir sér að fjárfestingu í
jarðvarmavirkjunum, jarðvarmaveitum og grunnuppbyggingu í verkefnum þar sem
tækifæri eru í nýtingu endurnýjanlegrar orku úr jarðvarma. 

Geysir Green Energy var stofnað í janúar á þessu ári af FL Group, Glitni og VGH
hönnun. Félagið hefur unnið að fjölmörgum jarðhitaverkefnum á liðnum mánuðum og
hefur m.a. eignast Jarðboranir, 32% hlut í Hitaveitu Suðurnesja og fjárfest í
jarðhitafélögum í Kanada, Þýskalandi og á Filippseyjum. Höfuðstöðvar Geysis eru
í Reykjanesbæ. 

Um Atorku
Atorka Group er fjárfestingarfélag sem er skráð í OMX Nordic Exchange á
Íslandi. Atorka fjárfestir í traustum fyrirtækjum sem eru í atvinnugreinum sem
hafa sérstök tækifæri til vaxtar á Heimsmarkaði. Í fjárfestingum sínum leggur
Atorka áherslu á að rekstur fyrirtækjanna sé öflugur með sterkt sjóðstreymi,
sterkt stjórnendateymi, starfi við góð skilyrði til verulegs innri og ytri
vaxtar og hafi tækifæri til verðmætaaukningar. 

Frekari upplýsingar veita:
Magnús Jónsson forstjóri Atorku í síma 354 840 6240 og Valdís Arnardóttir
kynningarstjóri Atorku í síma 840 6217
GlobeNewswire