- Niðurstöður hluthafafundar 8. október 2007.


Á hluthafafundi í Tryggingamiðstöðinni hf., sem haldinn var 8. október 2007,
voru samþykktar eftirfarandi breytingar á 19. gr. samþykkta félagsins: 

a.	Að 1. og 2. mgr. 19. hljóði svo:

	Stjórn félagsins skal skipuð þremur mönnum.  Stjórnarmenn og framkvæmdastjóri
skulu fullnægja þeim skilyrðum sem kveðið er á um í 66. gr. laga nr. 2/1995 um
hlutafélög og 2. mgr. 43. gr. laga nr. 60/1994 um vátryggingastarfsemi. 

Aðalfundur félagsins kýs stjórn og skal kjörtímabil stjórnarmanna vera til
næsta aðalfundar. Ef hluthafar, sem ráða yfir minnst 1/10 hlutafjárins,
krefjast þess, skal beita hlutfallskosningu eða margfeldiskosningu við kjör
stjórnarmanna.  Krafa um þetta skal hafa borist stjórn félagsins minnst fimm
dögum fyrir aðalfund.  Nú koma fram kröfur frá fleiri en einum hluthafahóp og
krafist er bæði hlutfalls- og margfeldiskosningar og skal þá beita
margfeldiskosningu. 

b.	Að 4. mgr. 19. gr. hljóði svo:

	Undirskrift meiri hluta stjórnarmanna er skuldbindandi fyrir félagið.  Á
stjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum og eru stjórnarfundir lögmætir þegar
meiri hluti  stjórnarmanna er mættur.  Stjórnin skal bóka stutta skýrslu um það
er fram fer á fundum hennar og staðfestist hún með undirskrift mættra
stjórnarmanna. 

Til setu í stjórn félagsins til loka starfsársins voru kjörnir:

Gunnar Karl Guðmundsson, kt. 141259-2960,
	Jón Sigurðsson, kt. 180378-4219, og
	Þorsteinn Már Baldvinsson, kt. 071052-4359.

Að hluthafafundinum loknum kom nýkjörin stjórn saman til fundar og skipti með
sér verkum.  Gunnar Karl Guðmundsson var kjörinn formaður stjórnar, Jón
Sigurðsson varaformaður og Þorsteinn Már Baldvinsson meðstjórnandi. 
GlobeNewswire