- Atorka kaupir 10% hlut í leiðandi framleiðanda á vatnshreinsilausnum í Asíu


Atorka hefur eignast um 10% hlut í Asia Environment Holdings (AENV)
sem er skráð í Kauphöllinni í Singapore (SGX-ST). Heildarverð
kaupanna er um 1,1 milljarður króna og hafa kaupin átt sér stað á
undanförnum vikum. Atorka fjármagnar kaupin með handbæru fé.
Asia Environment Holdings er leiðandi framleiðandi á
vatnshreinsilausnum í Kína. AENV sérhæfir sig í heildarlausnum á
sviði vatnshreinsunar allt frá framleiðslu á búnaði til reksturs og
eignarhalds á vatnshreinsistöðvum. AENV hefur meðal annars nýlega
lokið við uppbyggingu á 200.000 m3 vatnshreinsistöð í Kína sem
félagið mun eiga og reka næstu 20 árin og vinnur að uppbyggingu á
annan tug sambærilegra verkefna í Asíu. Markaðsvirði Asia Environment
Holdings er um USD 175 milljónir og er félagið skuldlaust með
töluvert handbært fé og því með góða fjárhagslega stöðu til frekari
vaxtar. Áætluð velta félagsins er um USD 80 milljónir fyrir árið 2008
og áætluð EBITDA er um 24 milljónir dollara.

Magnús Jónsson forstjóri Atorku;
Þessi fjárfesting er í takt við okkar fjárfestingarstefnu og sjáum
við veruleg tækifæri á þessum markaði og þá sérstaklega í Asíu. Með
aukinni velmegun aukast kröfur um aukin lífsgæði og nýtur þessi geiri
góðs af því."

Um Atorku
Atorka Group er fjárfestingarfélag sem er skráð í OMX Nordic Exchange
á Íslandi. Atorka fjárfestir í traustum fyrirtækjum sem eru í
atvinnugreinum sem hafa sérstök tækifæri til vaxtar á heimsmarkaði. Í
fjárfestingum sínum leggur Atorka áherslu á að rekstur fyrirtækjanna
sé öflugur með sterkt sjóðstreymi, sterkt stjórnendateymi, starfi við
góð skilyrði til verulegs innri og ytri vaxtar og hafi tækifæri til
verðmætaaukningar.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Jónsson forstjóri Atorku í síma 540
6200 og Valdís Arnardóttir kynningarstjóri 840 6217
GlobeNewswire