Hinn 6. nóvember 2007 var Landic Property hf. skipt í samræmi við lög um hlutafélög á þann hátt að Stoðir fasteignir ehf. tóku við öllum fasteignum Landic Property hf. á Íslandi, öllum rekstri sem fasteignunum tengdist og tilheyrandi eignum og skuldum. Landic Property hf. var eini stofnandi Stoða fasteigna ehf. og fyrir skiptinguna eini eigandi félagsins. Um var að ræða svokallaða skattalega skiptingu, sem fól það í sér að eignirnar færðust á milli félaganna á bókfærðu verði og hafði færslan ekki í för með sér skattskyldu, hvorki fyrir Landic Property hf. né hluthafa þess. Eitt skilyrða slíkrar skiptingar er að hluthafar félagsins sem skipt er fái eingöngu hluti í því félagi sem við tekur og fengu hluthafar Landic Property hf. því hluti í Stoðum fasteignum ehf. Eftir skiptinguna átti Landic Property hf. yfir 90% hlutafjár í Stoðum fasteignum ehf. og hafði því rétt til að innleysa minni hluta hluthafa í samræmi við lög um einkahlutafélög. Landic Property hf. nýtti sér rétt sinn til innlausnar og er nú eigandi alls hlutafjár í Stoðum fasteignum ehf. Tilgangurinn með skiptingu Landic Property hf. og eftirfarandi innlausn var að færa eignarhald fasteigna félagsins í dótturfélag. Meðfylgjandi er skiptingaráætlun. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Ögmundsdóttir í síma 860 77 72