Kaupþing banki hf. hefur samið við Landsbanka Íslands hf. um viðskiptavakt með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. fyrir eigin reikning Landsbankans. Samningurinn felur í sér að sett verða fram daglega kaup- og sölutilboð í hlutabréf Kaupþings banka hf. í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Tilboð eru sett fram í viðskiptakerfi OMX Nordic Exchange á Íslandi, áður en markaður er opnaður og skulu ekki gilda lengur en innan dagsins. Skilmálar viðskiptavakasamningsins eru eftirfarandi: Landsbankinn skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Kaupþings banka hf. að lágmarki 40.000 hlutir (hver hlutur er 10,0 kr. að nafnverði) og skulu tilboð vera á því gengi sem Landsbankinn ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,0% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,0%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Landsbankinn skuldbindur sig til að vera þátttakandi að dag hvern skal vera kr. 400.000.000,- að markaðsverði. Landsbankinn mun hefja viðskiptavaktina þann 21. janúar 2008. Nánari upplýsingar gefur fjárfestatengill Landsbankans, Tinna Molphy, ir@landsbanki.is eða í síma 410 7200 / 861 1440.
Kaupþing banki hf. semur við Landsbanka Íslands hf. um viðskiptavakt.
| Source: Landsbanki Íslands hf.