Fréttatilkynning
Afkoma ársins 2007
25. janúar 2008
Afkoma SP-Fjármögnunar hf. árið 2007
Stjórn SP-Fjármögnunar hf. hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2007.
SP-Fjármögnun hf. er eignaleigufyrirtæki og starfar eftir lögum um
fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Félagið er dótturfélag Landsbanka Íslands hf.,
sem á 51,0% hlutafjár, en aðrir hluthafar eru nokkrir sparisjóðir. Stærsti
eignahluturinn er í eigu Byrs sparisjóðs sem á 34,5% en aðrir eiga minna en 10%
hver.
Ársreikningur SP-Fjármögnunar hf. er gerður í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS) um árshlutareikninga.
--Rekstur SP-Fjármögnunar í samræmi við áætlanir á árinu 2007--
* Hagnaður eftir skatta nam um 960 millj. kr á árinu en var 803 milljónir á
árinu 2006 og er það 19,6% hækkun á milli ára.
* Hreinar tekjur voru 1.999 millj. kr sem er 32% aukning frá fyrra ári.
* Rekstrarkostnaður jókst um tæp 19% á milli ára, en kostnaðarhlutfallið hefur
aldrei verið lægra og nam 27,4% af hreinum rekstrartekjum á árinu.
--Efnahagsreikningur rúmir 49 milljarðar--
* Efnahagsreikningur félagsins stækkaði um tæplega 11 milljarða á árinu og
stendur í árslok í 49,2 milljörðum.
* Útlán og kröfur félagsins námu í árslok tæpum 47,7 milljörðum og hafa hækkað
jafnt og þétt á undanförnum árum.
* Eigið fé SP-Fjármögnunar hf. var í árslok 4.228 millj. kr. Eiginfjárhlutfall
félagsins sem reiknað er samkvæmt 84. gr. laga um fjármálafyrirtæki (CAD
hlutfall) er 11,3% en skv. lögum má það ekki vera lægra en 8%.
--Vanskilahlutföll--
* Í árslok 2007 námu vanskil eldri en 30 daga 0,54% af heildarútlánum og höfðu
hækkað úr 0,46% í ársbyrjun.
* Heildarvanskil í árslok eru um 472 millj. kr. en á sama tíma nam
virðisrýrnunarreikningur útlána og krafna 1,7% af heildarútlánum eða 815
millj. kr.
* Endanlega töpuð útlán á árinu 2007 námu 29 millj. kr., sem jafngildir
einungis 0,07% af meðalstöðu útlána ársins.
Afkoma SP-Fjármögnunar hf. á árinu 2007 var mjög góð og í samræmi við áætlanir.
Mikill vöxtur einkenndi starfsemi félagsins á árinu. Skipting útlána á milli
atvinnugreina er vel dreifð og jöfn skipting er á milli útlána til einstaklinga
og fyrirtækja. Árið 2008 hefur farið vel af stað og gera áætlanir ráð fyrir að
árið í heild verði félaginu hagfellt. SP-Fjármögnun hf. hefur á að skipa
reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Eigendur eru traustir og er félagið því vel í
stakk búið á komandi misserum til að takast á við þau fjölmörgu
viðskiptatækifæri sem eru á markaðnum.
Í stjórn SP-Fjármögnunar hf. eru Þorgeir Baldursson formaður, Elín Sigfúsdóttir,
Guðmundur P. Davíðsson, Magnús Ægir Magnússon og Ragnar Z. Guðjónsson.
Framkvæmdastjóri félagsins er Kjartan Georg Gunnarsson.
Frekari upplýsingar veitir Pétur Gunnarsson fjármálastjóri í síma 569-2000,
tölvupóstfang petur@sp.is
-Ársreikningur SP-Fjármögnunar hf. 2007-
| Source: SP-Fjármögnun hf.