Landsbankinn kynnti ársuppgjör 2007 þann 28. janúar í Reykjavík. Helstu atriði uppgjörsins má finna hér að neðan en meðfylgjandi eru ársreikningur, afkomukynning, fréttatilkynning og ársreikningurinn í EXCEL. Kynningarfundur í London 29. janúar Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson bankastjórar Landsbankans, munu kynna afkomu bankans og svara fyrirspurnum. Hægt verður að fylgjast með útsendingu af kynningunni á vef Landsbankans www.landsbanki.com/ir en öll fundargögn verða birt þar á sama tíma. Tími: 11:00 ( 11.00 UK og 12.00 CET) Staðsetning: Merchant Taylors Hall, 30 Threadneedle Street, London, EC2R 8JB. Skráning: Vegna strangra öryggisstaðla er nauðsynlegt að gestir skrái sig á http://www.landsbanki.is/english/registration/q42007results Útsending og símafundur Þeir sem vilja fylgjast með fundinum í London geta séð kynninguna í rauntíma á www.landsbanki.com/ir. Einnig verður hægt að hlusta á fundinn símleiðis með því að hringja 10 mínútum fyrir fund í síma +44 (0) 1452 567 098. Fundargögn og upptaka Hægt verður að nálgast fundargögn ásamt hljóð- og myndupptöku af kynningunni á www.landsbanki.com/ir að fundi loknum. Afkoma Landsbanka Íslands hf. á ársinu 2007 Hagnaður 40 milljarðar króna eftir skatta Arðsemi eigin fjár 27% Helstu niðurstöður úr ársreikningi Landsbanka Íslands hf. fyrir árið 2007: • Hagnaður ársins 2007 nam 39,9 milljörðum króna (EUR 456m). Hagnaður fyrir skatta var 45,6 milljarðar króna (EUR 520m). Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 27%. • Grunntekjur samstæðunnar (vaxtamunur og þjónustutekjur) námu 93,4 milljörðum króna (EUR 1,1bn) á árinu 2007 og jukust um 34% frá fyrra ári. • Grunntekjumyndun verður stöðugt dreifðari og var hlutfall erlendra grunntekna 52% á árinu 2007 samanborið við 49% á árinu 2006. • Þóknunartekjur námu 39,4 milljörðum króna (EUR 449m) samanborið við 28,4 milljarða króna á árinu 2006. • Gengismunur og fjárfestingatekjur námu 16,6 milljörðum króna (EUR 189m) samanborið við 19,6 milljarða króna á árinu 2006. • Lausafjárstaða bankans er mjög sterk og nam laust fé tæplega 9 milljörðum evra í árslok 2007. Afborganir af erlendum skuldabréfaútgáfum á árinu 2008 eru hinsvegar einungis 0,8 milljarðar evra. • Heildareignir bankans námu 3.058 milljörðum króna (EUR 33,4bn) króna í árslok 2007 í samanburði við 2.173 milljarða króna í upphafi ársins. • Útlán bankans námu 2.023 milljörðum króna (EUR 22,1bn) í árslok 2007. Innlán viðskiptavina námu hinsvegar 1.421 milljarði króna (EUR 15,5bn) eða um það bil ¾ af heildarútlánum og jukust þau um 108% á árinu. • Landsbankinn er með engar áhættuskuldbindingar sem tengjast skuldabréfavafningum (s.s. CDOs, SIVs og CLOs) í útlánasafni sínu. • Eiginfjárhlutfall (CAD) var 11,7% í árslok 2007. Eiginfjárþáttur A var 10,1%. Helstu niðurstöður fjórða ársfjórðungs 2007: • Hagnaður eftir skatta á fjórða ársfjórðungi 2007 nam 4,9 milljörðum króna (EUR 56m). • Hreinar rekstrartekjur fjórða ársfjórðungs námu 24,8 milljörðum króna (EUR 283m). • Hreinar vaxtatekjur námu 15,2 milljörðum króna (EUR 174m) í samanburði við 14,4 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi. • Þóknunartekjur þriðja ársfjórðungs námu 9,7 milljörðum króna (EUR 110m) • Grunntekjur samstæðunnar hafa aldrei verið hærri á einum ársfjórðungi eða 24,9 milljarðar króna (EUR 284m) Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri: ”Rekstrarafkoma Landsbankans á árinu 2007 var góð og nam hagnaður bankans 40 milljörðum króna og arðsemi eigin fjár 27%. Tekjumyndun samstæðunnar verður sífellt dreifðari auk þess sem grunnafkoma hefur verið stöðug eða í kringum 24-26% arðsemi á eigin fé fyrir skatta. Lausafjárstaða bankans er sterk einkum vegna mikils vaxtar í erlendri innlánastarfsemi. Afborganir af erlendum skuldabréfaútgáfum verða óverulegar á árinu 2008 eða 0,8 milljarðar evra á meðan laust fé bankans er tæpir 9 milljarðar evra. Þá er útlánasafn Landsbankans traust og er bankinn ekki með neinar áhættuskuldbindingar sem tengjast svokölluðum skuldabréfavafningum, s.s. CDOs, SIVs osfrv. Við þær óvenjulegu aðstæður sem einkenna alþjóðlega fjármálamarkaði þessi misserin skapa þessir þættir í raun tækifæri fyrir banka eins og Landsbankann”. Halldór J. Kristjánsson bankastjóri: ”Árangur margþáttaðra aðgerða sem gripið hefur verið til á undanförnum misserum kemur skýrt fram í uppgjöri Landsbankans fyrir árið 2007. Dregið hefur verið úr markaðsáhættu, útlánasafn bankans er vel áhættudreift og fjármögnunarhlið bankans sterk. Innlán nema nú um ¾ af heildarútlánum til viðskiptavina og er bankinn með tæplega 150 þúsund viðskiptavini sem valið hafa IceSave innlánsform okkar í Bretlandi. Á árinu var nýjum vörum bætt í innlánasafn IceSave og eru 14% innstæðna nú bundnar til lengri tíma. Tryggir það áframhaldandi áhættudreifingu innlána samstæðunnar. Á fjórða ársfjórðungi gekk bankinn frá 400 milljón USD víkjandi láni og styrkti þannig eiginfjárstöðu sína enn frekar og er eiginfjárstaða og lausafjárhlutfall bankans nú með því besta sem gerist í Norður Evrópu. Áframhaldandi samþætting rekstrareininga miðaði vel á árinu og hefur bankinn lagt áherslu á að kynna starfsemi bankans og stöðu íslensks efnahagslífs í því umróti sem einkennir alþjóðlega fjármálamarkaði”. Ársreikning Landsbanka Íslands hf. 2007 má nálgast á heimasíðu bankans www.landsbanki.com Nánari upplýsingar veita bankastjórar Landsbankans: Sigurjón Þ. Árnason í síma 410-4009 / 898-0177 og Halldór J. Kristjánsson í síma 410-4015 / 820-6399.