Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investors Service hefur tekið til athugunar lánshæfismatseinkunn Landsbankans Aa3/C með mögulega lækkun í huga. Hins vegar hefur einkunn vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans, P-1, verið staðfest, en það er jafnframt hæsta einkunn sem gefin er af Moody's. Nánari rökstuðning má finna í fréttatilkynningu frá Moody's hér meðfylgjandi. Frekari upplýsingar veita: Bankastjórar Landsbankans, Sigurjón Þ. Árnason s. 898 0177 og Halldór J. Kristjánsson í s. 820 6399, og Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs í s. 820-6340.
Moody's endurskoðar lánshæfismatseinkunn Landsbankans til mögulegrar lækkunar
| Source: Landsbanki Íslands hf.