Ársreikningur 365 hf. verður birtur þann 7. febrúar nk. Kynningarfundur vegna ársuppgjörsins verður haldinn fyrir hluthafa og markaðsaðila fimmtudaginn 7. febrúar kl. 12:00. Fundurinn fer fram í Skaftahlíð 24 en nánari upplýsingar eru veittar í móttöku norðurhússins. Á fundinum munu Ari Edwald forstjóri og Viðar Þorkelsson fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og starfsemi þess. Á fundinum verður boðið upp á léttan hádegisverð.
Kynningarfundur vegna ársuppgjörs 365 hf. - 7. febrúar kl. 12:00 í Skaftahlíð
| Source: Íslensk afþreying hf.