Hagnaður fyrstu sex mánaða 23,3 milljónir evra - hækkun um 31,9% Helstu atriði ● Velta á 2. ársfjórðungi nam 262,1 milljón evra sem er 11,5% hækkun. Velta fyrstu sex mánuði ársins var 396,1 milljón evra sem er 14,2% hækkun. ● Söluvöxtur á samanburðargrundvelli var 5,2% á 2. ársfjórðungi og 4,9% á fyrstu sex mánuðum ársins. ● EBITDA var 38,1 milljón evra á 2. ársfjórðungi, jókst um 9,7%, og var 45,4 milljónir evra fyrstu sex mánuði ársins sem er 18,7% hækkun. ● Vöxtur EBITDA á samanburðargrundvelli á 2. ársfjórðungi var 5% og 10% fyrstu sex mánuði ársins. ● EBITDA hlutfall var stöðugt eða 14,5% á 2. ársfjórðungi. ● Nettóhagnaður var 22,5 milljónir evra á 2. ársfjórðungi og jókst um 15,7%, og var 23,3 milljónir evra fyrstu sex mánuði ársins og hækkaði um 31,9% ● Samþætting nýrra fyrirtækja gengur vel, sem hefur styrkt meginstoðir félagsins og aukið markaðshlutdeild. ● Hráefniskostnaður hafði neikvæð áhrif á afkomuna í framleiðslu og sölu andaafurða, hveitipönnukaka (blinis) og smurvara. Xavier Govare, forstjóri Alfesca: „Afkoman í rekstri félagsins á hinum mikilvæga 2. ársfjórðungi og á fyrstu sex mánuðum ársins var ánægjuefni og sérstaklega uppörvandi af þremur ástæðum: Í fyrsta lagi verður þessi góða afkoma á mikilvægasta ársfjórðungnum í rekstri Alfesca en sala á reyktum laxi og andalifur (foie gras) er árstíðabundin og nær hámarki á 2. ársfjórðungi. Í öðru lagi endurspeglar góð afkoma mikilvægi stefnumörkunar okkar þar sem áherslan er á fjórar meginstoðir rekstrarins sem hver einkennist af ákveðnum sveiflum og sértækum áhættuþáttum. Þetta skipulag skapar stöðugleika í rekstri samstæðunnar þar sem meginstoðir rekstrarins styðja hver við aðra og stuðla að snurðulausri samþættingu nýrra fyrirtækja félagsins. Í þriðja lagi hefur aukin sala og góð afkoma náðst við erfiðari markaðsaðstæður en ríkt hafa um nokkurt skeið sem aftur má rekja til mikilla hækkana á hrávöruverði og samdrætti í neyslu í vætutíð sumarsins og yfir hátíðarnar. Grundvöllur góðrar afkomu allra stoða rekstrarins má rekja til stöðugrar áherslu á vöruþróun og aukna samkeppnishæfni. Búist er við að sala og markaðsaðstæður verði áfram erfiðar út almanaksárið 2008. Á sama tíma og við höldum til streitu áætlunum okkar um að efla félagið enn frekar og auka virði hluthafa þess sýnir afkoma félagsins að það er vel í stakk búið til að takast á við erfiðar ytri aðstæður. Við erum þess fullviss að afkoma Alfesca verði áfram góð á seinni hluta fjárhagsársins.“ Nánari upplýsingar: Philippe Perrineau framkvæmdastjóri fjármálasviðs 477 7000 Antony Hovanessian framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar 477 7000 Hrefna Ingólfsdóttir Forstöðumaður samskiptasvðis 477 7007