Nýting Kauprétta


Magnús Jónsson, forstjóri Atorku Group hf., hefur í dag nýtt kauprétt
að 20.000.000 hlutum í Atorku Group hf. á genginu 5,716 á hlut í
samræmi við kaupréttarsamninga sem Atorka Group hf. gerði við
lykilstjórnendur árið 2007. Magnús hefur selt Atorku Group hf.
hlutina aftur á genginu 7,99, sem er meðalverð síðustu 3
viðskiptadaga.  Samningurinn var gerður upp án viðskipta með
hlutabréf. Eftir viðskiptin á Magnús 0 hluti í Atorku og kauprétt að
40.000.000 hlutum. Fjöldi hluta fjárhagslegra tengdra aðila eftir
viðskiptin eru 464.087.944 hlutir í Atorku Group hf.

Arnar Már Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Atorku Group
hf., hefur í dag nýtt kauprétt að 3.000.000 hlutum í Atorku Group hf.
á genginu 5,716 á hlut í samræmi við kaupréttarsamninga sem Atorka
Group hf. gerði við lykilstjórnendur árið 2007. Arnar hefur selt
Atorku Group hf. hlutina aftur á genginu 7,99, sem er meðalverð
síðustu 3 viðskiptadaga.  Samningurinn var gerður upp án viðskipta
með hlutabréf. Eftir viðskiptin á Arnar Már 0 hluti í Atorku og
kauprétt að 12.000.000 hlutum. Fjöldi hluta fjárhagslegra tengdra
aðila eftir viðskiptin eru 77.922 hlutir í Atorku Group hf.

Valdís Arnardóttir, kynningarstjóri Atorku Group hf., hefur í dag
nýtt kauprétt að 2.000.000 hlutum í Atorku Group hf. á genginu 5,716
á hlut í samræmi við kaupréttarsamninga sem Atorka Group hf. gerði
við lykilstjórnendur árið 2007. Valdís hefur selt Atorku Group hf.
hlutina aftur á genginu 7,99, sem er meðalverð síðustu 3
viðskiptadaga.  Samningurinn var gerður upp án viðskipta með
hlutabréf. Eftir viðskiptin á Valdís 160.094 og kauprétt að 4.000.000
hlutum í Atorku Group hf.
GlobeNewswire