Metafkoma 2007
Hagnaður þrefaldast frá fyrra ári
-arðsemi eigin fjár 44%
Hagnaður Byrs árið 2007 nam 9.614 m.kr. fyrir tekjuskatt en nam 3.200 m.kr.
fyrir árið 2006 og nemur aukningin 200,5%. Að teknu tilliti til skatta var
hagnaður tímabilsins 7.929 m.kr. í samanburði við 2.676 m.kr. árið 2006.
Hagnaður eftir skatta jókst um 196,3% milli ára. Um er að ræða mesta hagnað í
sögu félagsins og hefur hagnaður fyrir skatta rúmlega þrefaldast frá fyrra ári.
Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla
(IFRS).
Á árinu 2006 sameinuðust Sparisjóður vélstjóra og Sparisjóður Hafnarfjarðar en
nafni sameinaðs sparisjóðs var síðar breytt í Byr. Reikningsskilalega miðaðist
samruninn við 30. apríl 2006. Í nóvember 2007 samþykkti Fjármálaeftirlitið
samruna Byrs og Sparisjóðs Kópavogs og reikningsskilalega miðast sá samruni við
1. nóvember 2007. Framangreindir samrunar hafa því veruleg áhrif á
samburðarhæfni fjárhæða og hlutfalla áranna 2006 og 2007.
Helstu niðurstöður úr rekstri og efnahag:
* Hagnaður Byrs árið 2007 nam 9.614 m.kr. fyrir skatta samanborið 3.200 m.kr.
árið 2006.
* Hagnaður eftir skatta nam 7.929 m.kr. samanborið við 2.676 m.kr. árið 2006.
* Arðsemi eigin fjár var 44% á ársgrundvelli.
* Vaxtatekjur námu 12.996 m.kr. og jukust um 58% frá fyrra ári.
* Vaxtagjöld námu 10.293 m.kr og jukust um 60% frá fyrra ári.
* Hreinar vaxtatekjur námu 2.703 m.kr. samanborið við 1.788 m.kr. árið 2006 og
hafa því aukist um 51%.
* Hreinar rekstrartekjur námu 13.885 m.kr. samanborið við 5.502 m.kr. árið
2006 og hafa því aukist um 152%.
* Rekstrargjöld námu 3.455 m.kr. og jukust um 56% frá fyrra ári.
Launakostnaður hækkaði um 26% en almennur rekstrarkostnaður hefur aukist
um 95%.
* Kostnaðarhlutfall árið 2007 var 24,9% á móti 40,2% fyrir árið 2006.
* Virðisrýrnun útlána nam 817 m.kr. samanborið við 89 mkr. árið 2006.
* Afskriftarreikningur lána og krafna nam í árslok 2007 1,5% af útlánum og
veittum ábyrgðum en var 1,0% í árslok 2006.
* Útlán til viðskiptavina námu 117.737 m.kr. og jukust um 61% á árinu.
* Innlán viðskiptamanna námu 70.102 m.kr. og jukust um 50% á árinu.
* Eigið fé í áraslok nam 53.197 m.kr. og hefur vaxið um 39.249 m.kr. á árinu
eða um 281%.
* Eiginfjárhlutfall skv. CAD reglum er 40,2%.
* Vaxtamunur tímabilsins var 1,9% samanborið við 2,5% árið 2006.
* Heildarfjármagn nam 184.852 m.kr. og jókst um 77% á árinu.
Nánari upplýsingar veita:
Ragnar Z. Guðjónsson og Magnús Ægir Magnússon sparisjóðsstjórar, sími 575-4000.
2007
| Source: Byr sparisjóður