Leiðrétting: Leiðrétting á fréttatilkynningu, verið er að bæta við lykiltölum og áritun endurskoðanda. Félagið innleiddi IFRS í reikningsskil sín í fyrsta skipti í ársreikningi 2007 og var farið eftir fyrirmælum í IFRS1, First time adoption of IFRS. Upptökudagur IFRS miðast við 1. janúar 2006, en það er dagsetning opnunarefnahagsreiknings. Í innleiðingarferlinu var farið yfir reikningsskil félagsins og dregið saman hvar mismunur væri á reikningshaldslegri meðhöndlun samkvæmt íslenskum ársreikningalögum og fyrirmælum IFRS. Í ljós kom að í tveim tilvikum var reikningshaldsleg meðhöndlun ekki í samræmi við IFRS, annarsvegar meðferð á lántökukostnaði og hinsvegar aðferð við útreikning fyrninga fastafjármuna. Lántökukostnaður hefur verið gjaldfærður að fullu við lántöku, en ekki dreift á líftíma láns miðað við aðferð virkra vaxta. Töluleg áhrif vegna þessa eru óveruleg í ársreikningnum og því hafa reikningskil félagsins ekki verið leiðrétt afturvirkt vegna þessa atriðis. Varðandi útreikning á fyrningu fastafjármuna þá mun aðferðafræðinni verða breytt til samræmis við fyrirmæli IFRS, en líkt og með lántökukostnaðinn eru áhrif breytingar óveruleg. Innleiðing IFRS leiddi því ekki til neinna tölulegra breytinga á samanburðartölum, en skýringar eru nú fleiri og ítarlegri en verið hefur, auk þess sem sérstakt tveggja ára eiginfjáryfirlit er meðal töluyfirlita en ekki innifalið í skýringum líkt og verið hefur. Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2007 var staðfestur af stjórn og framkvæmdastjóra félagsins í dag, 31. mars 2008. Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga. Rekstrartap félagsins á árinu 2007 var 27.531 þús. kr. og í lok þess var eigið fé neikvætt sem nam -19.080 þús. kr. samkvæmt ársreikningi. Ástæða fyrir þessu tapi má rekja til mikils fjármagnskostnaðar og of lágrar húsaleigu. Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána 470,7 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna. Ásgeir Valdimarsson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.
2007 - Leiðrétting - Frétt birt 2008.03.31:17:47:17
| Source: Jeratún ehf.