- Alfesca selur norska fisksölufyrirtækið Christiansen Partner


Alfesca hefur selt norska fiskölufyrirtækið Christiansen Partner AS til til CP
Holding AS, fyrirtækis sem er undir stjórn John Synnes, framkvæmdastjóra
Christiansen Parter. 

Þessi sala markar tímamót því nú á Alfesca ekki lengur neina aðild að sölu á
óunnum fiski enda er það stefna fyrirtækisins að einbeita sér að framleiðslu og
markaðssetningu á unnum matvælum. 

Afkoma Christiansen Partner verður skilgreind sem aflögð starfsemi í reikningum
Alfesca fyrir fjárhagsárið sem lýkur í júní 2008. Heildarvelta Christiansen
Partner nam €25,4 milljónum á fjárhagsárinu 2006/7. Bókfært virði heildareigna
fyrirtækisins sem var selt nam €2,5 milljónum í lok síðasta árs. Reiknað er með
að þessi sala nú muni hafa óveruleg en þó frekar jákvæð áhrif á afkomu Alfesca. 

Nánari upplýsingar veita:

Antony Hovanessian
framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar
+354 477 7000
ah@alfesca.com

Hrefna Ingolfsdottir
forstöðumaður samskiptasviðs
+354 477 7000
hi@alfesca.com

Um Alfesca
Alfesca er í fremstu röð matvælaframleiðenda í Evrópu á þeim sviðum sem
fyrirtækið starfar. Megin stoðirnar í starfsemi félagsins eru fjórar: reyktur
lax og annar fiskur, andalifur (foie gras) og andakjöt, rækjur og annar
skelfiskur og pönnukökur (blini) og smurvörur ásamt ídýfum. Vörur fyrirtækisins
eru seldar undir vörumerkjum þess eins og Labeyrie, Blini, Delpierre, Skandia,
Lyons og Farne. Fyrirtækið framleiðir einnig töluvert fyrir vörumerki annarra
einkum í Bretlandi, Frakklandi og Spáni. Árleg velta er um 616 milljónir Evra
og starfsmenn eru um 3,500 

Alfesca er skráð í Norrænu OMX-kauphöllinni á Íslandi (OMXI: A).

Upplýsingar um Alfesca er að finna á www.alfesca.com.

Fréttatilkynning þessi er birt á bæði ensku og íslensku. Ef um misræmi er að
ræða gildir enski textinn.

Attachments

frettatilkynning - christiansen partner.pdf
GlobeNewswire