Kaupþing sem verið hefur viðskiptavaki með hlutabréf FL Group hf. hefur sagt upp samningi um viðskiptavakt vegna mögulegrar afskráningar FL Group hf. frá og með deginum í dag. Samningur FL Group hf við Saga Capital Fjárfestingarbanka, Glitni banka og Landsbanka Íslands um að annast viðskiptavakt með hlutabréf í FL Group fyrir eigin reikning félaganna er enn í gildi.