Reykjavík, 21. maí 2008: Vegna athugasemdar OMX Nordic Exchange á Íslandi (“OMX”) við upplýsingagjöf FL Group í tengslum við tvö tilvik vill FL Group taka eftirfarandi fram: FL Group er ósammála niðurstöðu OMX í báðum tilvikum. FL Group telur forsendur OMX á misskilningi byggðar og niðurstöðuna ekki vera nægilega rökstudda. Í tilfelli sölu hlutabréfa í AMR í lok nóvember 2007 var ákveðið að tilkynna um viðskiptin á sama tíma í New York Stock Exchange, heimamarkaði hlutabréfanna og á OMX. Í tilfelli sölu bréfa í Commerzbank var um að ræða sölu á stórum eignarhluta í mörgum smáum skömmtum yfir margra vikna tímabil. Uppsöfnuð viðskipti voru tilkynnt OMX í samræmi við lög og reglur þar um, að mati FL Group. FL Group telur að í báðum tilvikum hafi verið staðið fullkomlega eðlilega að umræddri upplýsingagjöf, samkvæmt lögum og reglum og með hagsmuni félagsins og hluthafa þess að leiðarljósi. Þá telur FL Group að OMX hafi enga heimild til að taka ákvörðun um „beitingu opinberrar áminningar“. OMX hefur heimild til að birta opinbera yfirlýsingu varðandi mál sbr. 3. lið greinar 8.3. í Kauphallarreglum en hefur ekki heimild til að beita opinberum áminningum. Hvergi í reglum OMX, samningum OMX við útgefendur, lögum eða reglum er kveðið á um heimild til OMX til að áminna útgefendur. Frekari upplýsingar veitir: Júlíus Þorfinnsson Forstöðumaður samskiptasviðs FL Group Sími: 591 4400 julius@flgroup.is