Ársreikningur Haga hf. Ársreikningur félagsins hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er nú í fyrsta sinn gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Innleiðing staðlanna hefur óveruleg áhrif á reikningsskil félagsins. Ársreikningur félagsins var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins 29. maí 2008. Stjórn leggur til að ekki verði greiddur út arður til hluthafa vegna ársins 2007/08. Lykiltölur - samstæða • Hagnaður ársins 2007/08 nam 527 millj. kr. en hagnaður nam 551 millj. kr. árið áður. • Rekstrartekjur ársins námu 52.210 millj. kr. en námu 46.513 millj. kr. árið áður. • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 2.906 millj. kr. en nam 2.074 millj. kr. árið áður. • Heildareignir samstæðunnar námu 27.995 millj. kr. í lok reikningsársins en námu 23.616 millj. kr. árið áður. • Eigið fé félagsins nam 8.808 millj. kr. í lok reikningsársins en nam 6.538 millj. kr árið áður. • Eiginfjárhlutfall félagsins var 31,5% í lok reikningsársins. Fyrirtæki Haga eru eftirfarandi: Bónus Debenhams Hagkauk Ferskar kjötvörur 10-11 Noron (Zara) Aðföng Res Hýsing Íshöfn Útilíf Bananar Hlutdeildarfélög eru: Max og SMS p/f Stöðugildi hjá félaginu í lok reikningsársins námu 1.627 Endurskoðun Ársreikningurinn hefur verið áritaður af endurskoðendum félagsins. Staða og horfur Horfur í rekstri félagsins eru góðar. Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins í síma 530 5500
Recommended Reading
-
Á aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 27. maí 2025 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi...
Read More -
Meðfylgjandi er fjárfestakynning Haga á uppgjöri 3. ársfjórðungs 2025/26 sem haldin verður fyrir markaðsaðila og hluthafa kl. 8:30 í dag, föstudaginn 16. janúar 2026, á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í...
Read More