Stjórn 365 hf. boðar til hluthafafundar í félaginu sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica þriðjudaginn 1. júlí 2008, kl. 14.00. Dagskrá: 1.Tillaga um að stjórn félagsins verði falið að óska eftir afskráningu hlutabréfa félagsins úr kauphöll OMX Nordic Exchange á Íslandi. 2.Tillaga um að stjórn félagsins verði falið að kaupa hluti þeirra hluthafa í félaginu er þess óska fyrir kl. 16.00 þann 11. júlí 2008. Greitt verði á kaupverði kr. 1. 20 á hvern hlut. 3.Tillaga um að stjórn félagsins verði heimilað í tengslum við framangreind kaup á hlutabréfum í 365 hf. , sbr. dagskrárlið 2, að kaupa allt að 15% eigin hluta fyrir kr. 1. 20 hvern hlut. Heimildin skal gilda til og með 31. júlí 2008. Verði eigin hlutir í eign félagsins umfram 10% eftir viðskiptin skal stjórn félagsins lækka hlutafé félagsins í samræmi við lög um hlutafélög til að eigin hlutir eftir slíka hlutafjárlækkun verði ekki umfram 10% af hlutafénu. Atkvæðaseðlar afhendast á hluthafafundinum og verða einungis atkvæði þeirra hluthafa sem eru skráðir í hlutaskrá kl. 11.00 þann 1. júlí talin með. Stjórn 365 hf.