Kauptilboð 365 hf. til hluthafa félagsins um kaup á bréfum hluthafa á genginu 1,20 kr., í tengslum við fyrirhugaða afskráningu félagsins, lauk í dag, 11. júlí kl. 16.00. Eigendur um 7% hlutafjár í 365 hf., eða um 165 aðilar, samþykktu kauptilboðið. Eigendur um 93% hlutafjár (þar af 2% í eigin bréfum félagsins) munu því eiga hluti sína áfram í félaginu eftir fyrirhugaða afskráningu þess. Straumur fjárfestingafélag mun annast greiðslu til þeirra hluthafa sem tóku tilboði félagsins. Hluthafar munu fá andvirði bréfanna greitt á reikninga sína fyrir 1. ágúst næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir: Hildur Sverrisdóttir regluvörður 365 hf. s. 849-2491 hildurs@365.is