Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi Landsbanka Íslands hf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008: * Hagnaður fyrir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins 2008 nam 31,1 milljarði króna (EUR 285m). Hagnaður eftir skatta var 29,5 milljarðar króna (EUR 270m). * Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 35%. Eiginfjárhlutfall (CAD) var 10,3% í lok júní 2008. * Grunntekjur samstæðunnar (vaxtamunur og þjónustutekjur) námu 58 milljörðum króna (EUR 531m) og hafa aukist um 32% miðað við fyrstu sex mánuði ársins 2007. * Grunntekjur af erlendri starfsemi námu 33,9 milljörðum (EUR 310m) króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2008 eða 59% af grunntekjum samstæðunnar. * Gengismunur og fjárfestingatekjur námu 19,8 milljörðum króna (EUR 181m) samanborið við 14,8 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2007. * Heildareignir bankans námu 3.970 milljarði króna (EUR 31,9bn) króna í lok júní 2008 í samanburði við 3.058 milljarða króna (EUR 33,4bn) í upphafi ársins. Heildareignir í EUR hafa lækkað samkvæmt þessu um 4,4% á fyrri hluta ársins 2008. * Lausafjárstaða bankans hefur haldist sterk og var hún um 7,8 milljarðar evra í lok júní 2008. Helstu niðurstöður annars ársfjórðungs 2008: * Hagnaður eftir skatta á öðrum ársfjórðungi 2008 nam 12,0 milljörðum króna (EUR 101m). * Vaxtamunur annars ársfjórðungs nam 20,9 milljörðum króna (EUR 176m). * Hreinar þjónustutekjur voru 10,9 milljarðar króna (EUR 92m) sem er sama fjárhæð og á fyrsta ársfjórðungi 2008. Eru þetta tveir hæstu fjórðungar bankans frá upphafi hvað þjónustutekjur varðar. Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri:"Afkoma Landsbankans á fyrstu 6 mánuðum ársins er mjög góð. Þetta er mikilvægt, ekki síst í ljósi erfiðra aðstæðna á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Grunntekjur samstæðunar hafa aukist um 32% miðað við fyrstu sex mánuði ársins 2007. Þá var arðsemi eigin fjár 35% á tímabilinu. Á öðrum ársfjórðungi steig bankinn stórt skref er hann hóf innlánastarfsemi á meginlandi Evrópu með því að bjóða Icesave netreikninginn í Hollandi. Fjöldi Icesave reikninga í Bretlandi og Hollandi eru nú yfir 350.000 talsins og yfir 50% af heildarfjárhæð Icesave innlánanna í Bretlandi er nú bundin. Bankinn mun halda áfram að styrkja hlutfall innlána í fjármögnun sinni en starfsemi Icesave í Hollandi er bæði sveigjanleg og öflug sem auðveldar Landsbankanum að sækja inn á fleiri markaði Evrópu á næstu mánuðum." Halldór J. Kristjánsson bankastjóri:"Íslenska hagkerfið er nú að endurheimta jafnvægi aftur eftir mikinn og áralangan vöxt. Þróunin fyrri hluta ársins endurspeglar þessa breytingu, sér í lagi endurmat á krónunni og tímabundið verðbólguskot. Þökk sé jákvæðum gjaldeyris- og verðtryggingarjöfnuði hefur Landsbankanum tekist að halda neikvæðum áhrifum gengislækkunarinnar á eiginfjárhlutfall og efnahagsreikning í lágmarki. Íslensk heimili eru að hluta varin gegn skammtímaáhrifum verðbólgu þar sem hefðbundin húsnæðislán bera fasta raunvexti. Sú staðreynd að útlánaaukning stærstu íslensku bankanna hefur að mestu verið til erlendra aðila, eða innlendra fyrirtækja með umsvif erlendis, hefur einnig dregið úr áhrifum veikingar krónunnar. Í grunninn byggir íslenskt efnahagslíf á atvinnugreinum sem núverandi niðursveifla hefur ekki neikvæð áhrif á, svo sem matvælaframleiðslu, tækni og náttúrvænni, endurnýjanlegri orku. Nýlegar stóriðjuframkvæmdir hafa aukið framleiðslugetu í útflutningsgreinum sem auðveldar aðlögun hagkerfisins að nýju jafnvægi. Aukin arðsemi af nýtingu hinna fjölmörgu orkulinda landsins mun ýta undir beinar erlendar fjárfestingar í orkufrekum iðnaði. Aukin orkuframleiðsla getur aukið landsframleiðsluna um 4% sem svarar til um 0,8% hagvaxtarauka á ári næstu 5 árin." Nánari upplýsingar veita bankastjórar Landsbankans: Sigurjón Þ. Árnason í síma 410-4009 / 898-0177 og Halldór J. Kristjánsson í síma 410-4015 / 820-6399. Kynningarfundur í Reykjavík 29. júlí Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, bankastjórar Landsbankans, munu kynna afkomu bankans og svara fyrirspurnum. Kynningarefni frá fundinum verður birt á sama tíma á vef Landsbankans. Tími: 8.30 ( 9.30 UK og 10.30 CET) Staðsetning: Hilton Nordica Hotel Skráning: Vinsamlegast skráið ykkur á afkomukynningu í Reykjavík hér: http://www.landsbanki.is/skraning/6manadauppgjor2008 Kynningarfundur í London 29. júlí Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson bankastjórar Landsbankans, munu kynna afkomu bankans og svara fyrirspurnum. Hægt verður að fylgjast með útsendingu af kynningunni á vef Landsbankans www.landsbanki.com/ir en öll fundargögn verða birt þar á sama tíma. Tími: 15:00 ( 16.00 UK og 17.00 CET) Staðsetning: Beaufort House 15 St Botolph Street, London EC3A 7QR Skráning: Vegna öryggisráðstafanna er nauðsynlegt að gestir skrái sig á http://www.landsbanki.is/english/registration/q22008results Útsending og símafundur Þeir sem vilja fylgjast með fundinum í London geta séð kynninguna í rauntíma á www.landsbanki.com/ir. Einnig verður hægt að hlusta á fundinn símleiðis með því að hringja 10 mínútum fyrir fund í síma +44 (0) 1452 569 103. Fundargögn og upptaka Hægt verður að nálgast fundargögn ásamt hljóð- og myndupptöku af kynningunni á www.landsbanki.com/ir að fundi loknum. Nánari upplýsingar gefur fjárfestatengill Landsbankans, Tinna Molphy, í gegnum tölvupóst, ir@landsbanki.is, eða síma 410-7200 / 861-1440.
Afkoma Landsbankans á fyrstu sex mánuðum ársins 2008
| Source: Landsbanki Íslands hf.