Tap SPRON 5,0 milljarðar króna eftir skatta Sterk eiginfjárstaða 12,1% og traust aðgengi að lausafé Helstu niðurstöður á öðrum ársfjórðungi 2008: • Tap eftir skatta nam 5,0 milljörðum króna en allar skráðar eignir eru færðar á markaðsvirði. Neikvæð þróun á hlutabréfamarkaði á öðrum ársfjórðungi olli gengistapi sem nam 4,9 milljörðum króna • Hreinar vaxtatekjur námu 888 milljónum króna og jukust um 40% frá sama tímabili í fyrra • Hreinar þjónustutekjur námu 246 milljónum króna og jukust um 7% frá sama tímabili í fyrra • Hreinar rekstrartekjur voru neikvæðar um 3,7 milljarða króna • Heildareignir eru 246,7 milljarðar króna og hafa aukist um 10% frá árslokum 2007 • Heildarútlán til viðskiptamanna SPRON námu 179,8 milljörðum króna • Innlán eru 49% af heildarútlánum til viðskiptamanna • Innlánaaukning er 4% frá árslokum 2007 • Eigið fé nam 13,5 milljarðar króna • Eiginfjárhlutfall (CAD) SPRON er 12,1% • Verðbréfun íbúðalána (e. Securitisation) fyrir 21 milljarð króna, 78,5% skuldabréfanna með Aaa lánshæfismat frá Moodys • Stjórnir SPRON og Kaupþings samþykktu samrunaáætlun félaganna þann 1. júlí 2008 Helstu niðurstöður fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008: • Tap eftir skatta var 13,5 milljarðar króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2008 • Hreinar vaxtatekjur námu 1,7 milljörðum króna og jukust um 56% frá sama tímabili í fyrra • Hreinar þjónustutekjur námu 581 milljónum króna og jukust um 7% samanborið við fyrstu sex mánuði ársins 2007 Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON: „Líkt og undanfarna ársfjórðunga líður afkoma SPRON fyrir óhagstæðar markaðsaðstæður, sem hafa einkennst af miklum lækkunum á hlutabréfamörkuðum, rýrnun á markaðsverðbréfum og háum stýrivöxtum. Grunnrekstur SPRON er traustur og hafa vaxtatekjur aukist um 56% á fyrri helmingi ársins frá því á sama tímabili í fyrra. Innlán frá viðskiptavinum sem hlutfall af útlánum er 49%. Undanfarið hefur SPRON hagrætt í rekstri sem skilar sér í lægri rekstrarkostnaði og mun árangur hagræðingaraðgerða halda áfram að koma fram eftir því sem líður á árið. SPRON hefur nú tryggt fjármögnun með verðbréfun íbúðalána (e. Securitisation) fyrir 21 milljarð króna, 78,5% skuldabréfanna eru með Aaa lánshæfismat frá Moody's og eru gefin út í evrum. Ég er mjög ánægður með að íbúðalánasafnið hafi fengið hæsta mögulega mat frá Moody´s þrátt fyrir erfiðar aðstæður á markaði. Verðbréfun íbúðalána opnar nýjar fjármögnunarleiðir fyrir SPRON og mun traust útlánasafn samstæðunnar gera okkur kleift að fjármagna starfsemina enn frekar með þessum hætti. SPRON hefur sterka eiginfjárstöðu eða 12,1% og traust aðgengi að lausafé. Horfur eru því vel viðunandi þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður. Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar um uppgjörið veitir Guðmundur Hauksson forstjóri SPRON í síma 550 1213 og Valgeir M. Baldursson framkvæmdastjóri fjárhagssviðs í síma 550 1774 / 897 8939. Frekari upplýsingar um SPRON má nálgast á heimasíðu félagsins www.spron.is og jafnframt er hægt að senda fyrirspurnir á ir@spron.is