-Traustur grunnrekstur þrátt fyrir neikvæða rekstrarniðurstöðu- Árshlutauppgjör VBS fjárfestingarbanka hf. sýnir að afrakstur bankans af grunnstarfsemi er góður þrátt fyrir að reksturinn sýni neikvæða niðurstöðu að upphæð 870 milljónir króna. Vöxtur er á efnahagsliðum bankans og er niðurstöðutala efnahagsreiknings 55,7 milljarðar króna. Þóknunartekjur nema 447 milljónum króna og hreinar vaxtatekjur 334 milljónum króna. Þá er eigið fé samkvæmt árhlutareikningi um 7,1 milljarður og eiginfjárhlutfall (CAD) 16,9% Í uppgjörinu kemur fram að bankinn nýtti sér sterka eiginfjárstöðu og færði varúðarfærslu sem nam 765 milljónum króna vegna mögulegrar virðisrýrnumar útlána. Einnig voru óskráðar eignir færðar niður um tæplega 400 milljónir króna. Jón Þórisson forstjóri VBS fjárfestingarbanka: “ Það er ánægjulegt að sjá að þekking og reynsla starfsmanna VBS, hafi tryggt tekjustraum bankans þrátt fyrir öflugan mótvind á mörkuðum, ekki síst fasteignamarkaði. Með því vitum við að hæfileikinn til viðhalda traustum tekjum bankans er til staðar, sem er mjög mikilvægt. Við gerð uppgjörsins var lögð rík áhersla á að vanmeta ekki það tjón sem aðstæðurnar geta valdið bankanum, svo sem við mat á virðisrýrnun útlána og mat á virði hlutabréfa í eigu hans. Ljóst er að ytri aðstæður verða áfram nokkuð mótdrægar en gerum ráð fyrir að það versta sé að baki. Það er því full ástæða til bjartsýni á framhaldið“. Frekari upplýsingar veitir: Jón Þórisson 842-2202
- Afkoma VBS fjárfestingarbanka fyrstu 6 mánuði ársins 2008
| Source: VBS Fjárfestingarbanki hf.