Stjórn Landsvaka hf., sem starfar á grundvelli laga nr. 161/2002 og annast rekstur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða hefur staðfest 6 mánaða uppgjör félagsins fyrir árið 2008. Fyrri hluti árs 2008 var viðburðaríkur í rekstri Landsvaka hf., bæði með tilliti til ástands á þeim mörkuðum sem sjóðir félagsins fjárfesta á og einnig varðandi breytingar á sjóðaframboði félagsins. Á tímabilinu var stofnaður 1 nýr sjóður, Landsbanki Fixed Income Opportunities og tekin ákvörðun um slit á 2 sjóðum, Landsbanka Diversified Yield Fund og Peningabréfum CAD. Einnig fjölgaði þeim sjóðum sem Landsvaki hf. er fjárfestingarráðgjafi fyrir um 1 með stofnun Landsbanka Icelandic Money Market Fund í Luxembourg. • Árshlutareikningur Landsvaka hf. skiptist í tvo hluta, A-hluta og B-hluta. A-hluti nær til rekstrarfélagsins og B-hluti nær til verðbréfasjóða, fjárfestingarsjóða og fagfjárfestasjóða Landsvaka hf.. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar voru af Fjármálaeftirlitinu árið 2002. • Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af PricewaterhouseCoopers hf sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á tímabilinu, efnahag í lok tímabils og breytinga á fjárhagslegri skipan, í samræmi við lög og settar reikningsskilareglur. Horfur í rekstri Landsvaka hf. eru almennt góðar og félagið er vel í stakk búið til að mæta þeim áskorunum sem felast í alþjóðlegu efnahagsumhverfi og á þeim mörkuðum sem félagið starfar á. Árangur í ávöxtun fjármuna félagsins er lykilárangursþáttur og hefur þar tekist vel til. Framundan eru skipulagsbreytingar í rekstri Landsvaka hf. þar sem starfsemi félagsins verður útvíkkuð. Framvegis mun hún ná yfir fleiri svið en stýringu verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða og mun innihalda þá starfsemi sem nú fer fram undir eignastýringarsviði Landsbankans. Nánari upplýsingar um árshlutareikning Landsvaka hf. veitir Sigurður Óli Hákonarson framkvæmdarstjóri í síma 410 7171.
- 6 mánaða uppgjör 2008
| Source: Landsvaki