Helstu niðurstöður: • Þóknanatekjur 679 milljónir króna, sem er 8% aukning frá fyrra ári • Hreinar rekstrartekjur 1.109 milljónir króna, sem er 30% aukning frá fyrra ári • Varúðarniðurfærsla vegna útlána 748 milljónir króna • Tap á fyrri hluta ársins 961 milljónir króna í samanburði við 207 milljón króna hagnað á fyrri hluta ársins 2007 • Heildareignir í lok tímabilsins 53,7 milljarðar króna en um áramót voru eignir 34,3 milljarðar króna • Eignir í stýringu 40 milljarðar króna og skuldir í stýringu 270 milljarðar króna • Eiginfjárþáttur A 17,2% BENEDIKT ÁRNASON, FORSTJÓRI ASKAR CAPITAL: „Á fyrri hluta ársins var haldið áfram uppbyggingu innviða og viðskiptasambanda enda er bankinn ekki nema 18 mánaða gamall og aðeins eitt ár frá því að hann fékk starfsleyfi. Þrengingar á alþjóðlegum fjármálamarkaði hafa leitt til þess að uppbygging í fasteigna- og framtaksfjárfestingaverkefnum hefur verið mun hægari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Á hinn bóginn hafa aðstæður á mörkuðum leitt til tækifæra á öðrum sviðum sérhæfðrar fjármálaráðgjafar, svo sem í gjaldeyrisafurðum, skuldastýringu og milligöngu um lántökur. Það eru vissulega vonbrigði að tap skuli vera af rekstri á fyrri hluta ársins en tapið kemur að mestu til af varúðarniðurfærslu vegna útlána, sér í lagi vegna dótturfélagsins Avant. Við höfum brugðist við breyttum aðstæðum og í áætlun okkar fyrir síðari hluta ársins gerum við ráð fyrir að þóknanatekjur verði hærri en rekstrargjöld.“