Lykiltölur frá fyrri helmingi ársins • Hagnaður af kjarnastarfsemi félagsins nam 5.362 milljónum kr. á fyrstu sex mánuðum ársins. • Hagnaður tímabilsins nam 435 milljónum kr. • Rekstrartekjur tímabilsins voru 16.755 milljónir kr. • Heildareignir félagsins í lok júní námu 592.008 milljónum kr. • Eigið fé félagsins ásamt tekjuskattskuldbindingum og víkjandi lánum var samtals 117.324 milljónir kr., sem er 20% af heildareignum í lok júní 2008. Helstu atburðir á fyrri helmingi ársins: • Landic Property hf. festi kaup á hlut í fimm alþjóðlegum fasteignasjóðum. Kaupverðið nam 20,6 milljörðum króna og var fjármagnað með víkjandi láni með breytirétti sem kemur til greiðslu eftir fimm ár. • Landic Property opnaði skrifstofu í Helsinki í febrúar s.l. Opnun skrifstofunnar greiðir fyrir möguleikum á vexti í starfsemi félagsins í Finnlandi og Eystrarsaltslöndunum. • Keops Development var selt í maí en kaupin gengu til baka í ágúst • Keops Investment markaðsett sem Landic Investment. • Ný deild, Landic Funds, stofnuð sem sérhæfir sig í rekstri fasteignasjóða fyrir 3ja aðila. Tveir sjóðir eru í bígerð, Landic Nordic Property Fund 1 og Landic Hotel Fund 1. Helstu atburðir eftir lok uppgjörstímabils • Landic Property seldi Keops Development til danska fjárfestingarfélagins Stones Invest í maí s.l. Þann 14. ágúst s.l.reyndi Stones Invest að komast undan samningnum og rifta honum án neins fyrirvara. Landic Property hafði uppfyllt öll skilyrði samningsins við Stones Invest um sölu á Keops Development og því voru engar forsendur fyrir ásökunum um vanefndir. Stones Invest hefur ekki staðið við þau ákvæði kaupsamningsins um að losa Landic Property undan ábyrgðum sínum og að framfylgja ítarlegri áætlun um sjóðstreymi til að tryggja greiðslur til banka og þróunaraðila vegna verkefna á vegum Keops Development. Landic Property ákvað því, 19. ágúst s.l., að yfirtaka Keops Development á ný til þess að vernda fjárhagslega hagsmuni sína,verðmæti Keops Development og hagsmuni viðskiptafélaga og viðskiptabanka félagsins. Skarphéðinn Berg Steinarsson, CEO: “ Rekstur á kjarnastarfsemi Landic Property gengur vel eins og glögglega kemur fram í afkomu félagsins. Við höfum auðvitað orðið vör við umhverfið í fjármálaheiminum eins og öll félög með alþjóðlega starfsemi. En okkur hefur tekist að standa vörð um verðmæti félagsins og náð árangri í þessu umróti. Efnahagsreikningurinn endurspeglar vel stærð og umsvif Landic Property, bæði á íslenskum og alþjóðlegum mælikvarð. Í reikningnum kemur fram að mál Keops Development hefur verið erfið og það var slæmt að salan á félaginu gengi ekki eftir. En við erum að fara í saumana á rekstri Keops Development með það að markmiði að hámarka þá stöðu sem býr í félaginu.” Nánari upplýsingar veita: Fyrir fjárfesta: Guðrún Ögmundsdóttir, fjárfestatengill, í síma 860-7772 Fyrir blaðamenn: Páll Benediktsson, forstöðumaður samskiptasviðs í síma 895-6066 Um Landic Property: Landic Property sérhæfir sig í leigu á verslunar- og skrifstofuhúsnæði til fyrirtækja og opinberra stofnana. Landic Property er eitt af stærstu fasteignafélögunum á Norðurlöndum. Félagið er leiðandi á markaði á Íslandi, hefur umtalsverða markaðshlutdeild í Svíþjóð og Danmörku, og er búið að ná öruggri fótfestu í Finnlandi. Langstærstur hluti fasteigna félagins er staðsettur á kjörsvæðum í miðborgum sem eru eftirsótt til kaupsýslu og skrifstofuhalds. Landic Property var stofnað árið 1999 af Baugi og Kaupþingi. Síðastliðið haust yfirtók félagið danska fasteignafélagið Keops A/S, sem var skráð í OMX Kauphöllinni í Danmörku frá 1998 - 2007. Áður höfðu Stoðir eignast fasteignafélagið Atlas Ejendomme A/S, sem hafði yfir að ráða mjög verðmætum eignum í miðborg Kaupmannahafnar. Um 200 starfsmenn vinna hjá Landic Property og félagið á um 500 fasteignir í Svíþjóð, Danmörku, Íslandi og Finnlandi. Leigusafn félagsins nemur um 2,6 milljónum fermetra að flatarmáli. Leigjendur eru um 3.200 og verðmæti eigna nemur um 592 milljörðum króna.