Hf. Eimskipafélag Íslands birtir uppgjör sitt fyrir fyrstu níu mánuði rekstrarársins 2008, þann 11. september, eftir lokun markaða. Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn þann 12. september, í húsakynnum Eimskips, Sundakletti, að Korngörðum 2. Kynning á uppgjörinu hefst stundvíslega kl. 08:30 og boðið verður upp á léttan morgunverð. Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips mun kynna afkomu félagsins og svarar spurningum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Eimskips www.eimskip.is. Frekari upplýsingar veitir: Halldór Kristmannsson Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs Sími: 825 7221 / 525 7000 Póstfang: halldor@eimskip.is