Reykjavík, 29. september 2008 Matsfyrirtækið Standard & Poor's tilkynnti í dag að það hefði lækkað einkunn sína á Glitni sem mótaðila (e. counterparty credit rating) úr 'BBB+/A2' í 'BBB/A-3'. Ennfremur lækkar fyrirtækið einkunn sína á víkjandi skuldabréfum (e. hybrid capital instruments) Glitnis í 'BB'. Tilkynningin kemur í kjölfar tilkynningar þar sem S&P lækkar lánshæfismatseinkunn ríkissjóðs vegna skuldbindinga í erlendri mynt úr 'A/A-1' í 'A-/A-2'. Þá lækkar matsfyrirtækið einnig einkunn ríkissjóðs vegna skuldbindinga í íslenskum krónum úr 'A+/A-1' í 'AA-/A-1+' Frekari upplýsingar veita: Vilhelm Már Þorsteinsson, Framkvæmdastjóri Fjárstýringar Glitnis í síma 440 4012 Sigrún Hjartardóttir, Forstöðumaður fjárfestatengsla í gegnum netfang sihj@glitnir.is eða síma 440 4748 Már Másson, Forstöðumaður kynningarmála í gegnum netfang mm@glitnir.is eða í síma 440 4990
S&P breytir lánshæfiseinkunn Glitnis
| Source: Glitnir banki hf.