Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investors Service hefur tekið lánshæfiseinkunn sérvarinna skuldabréfa Kaupþings til endurskoðunar vegna hugsanlegrar lækkunar, en bréfin hafa nú Aaa lánshæfiseinkunn. Þessi ákvörðun kemur í kjölfar ákvörðunar Moody's að taka til endurskoðunar langtímaeinkunn Kaupþing (A1), skammtímaeinkunn bankans (P-1) og einkunn vegna fjárhagslegs styrkleika (C-), vegna hugsanlegrar lækkunar. Nánari upplýsingar veitir Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, í síma 444 6112.
Moody's tekur lánshæfiseinkunn sérvarinna skuldabréfa Kaupþings til endurskoðunar vegna hugsanlegrar lækkunar
| Source: Kaupþing banki hf.