Reykjavík, 3. október 2008 HLUTHAFAFUNDUR GLITNIS BANKA HF. Með vísan til 7. gr. samþykkta Glitnis banka hf. er hér með boðað til hluthafafundar í félaginu. Hluthafafundurinn verður haldinn í Háskólabíói, stóra sal, Hagatorgi, Reykjavík, laugardaginn 11. október 2008 kl. 17:00. Dagskrá: 1. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.[1] 2. Önnur mál. Dagskrá fundarins og endanlegar tillögur liggja frammi hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins, Kirkjusandi 2, 5. hæð, viku fyrir hluthafafund hið minnsta. Þessi gögn verða einnig aðgengileg á www.glitnir.is. Óski hluthafi eftir því að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á fundinum skal hann gera skriflega kröfu um það til stjórnar eigi síðar en fimm virkum dögum fyrir upphaf fundar. Skal ósk hluthafa komið skriflega til skrifstofu félagsins með sannanlegum hætti[2] fyrir miðnætti sunnudaginn 5. október 2008. Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á fundarstað frá kl. 16:00 á fundardegi. Afhendingu aðgöngumiða og atkvæðaseðla verður hætt kl. 17:00. Hluthafar geta greitt atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins rafrænt. Hluthafar sem hyggjast greiða atkvæði með rafrænum hætti þurfa að hafa aðgang að interneti. Nánari upplýsingar um framkvæmd rafrænnar þátttöku á fundinum má nálgast á heimasíðu félagsins, www.glitnir.is. Stjórn Glitnis banka hf. [1] Stjórn Glitnis banka hf. leggur svohljóðandi tillögur til breytinga á samþykktum félagsins fyrir hluthafafund, haldinn 11. október 2008: Að hlutafé félagsins verði aukið um kr. 44.642.103.909 - fjörutíu og fjóra milljarða sex hundruð fjörutíu og tvær milljónir eitt hundrað og þrjú þúsund níu hundruð og níu krónur - að nafnverði. Aukningarhlutirnir verði seldir Ríkissjóði Íslands fyrir 600.000.000€ - sex hundruð milljónir Evra. Hluthafar falla frá forgangsrétti til áskriftar vegna hækkunar þessarar. Verði tillagan samþykkt mun 1. mgr. 4. gr. samþykkta Glitnis banka hf. verða svo að hækkun afstaðinni:"Hlutafé félagsins er kr. 59.522.805.212 - fimmtíu og níu milljarðar fimm hundruð tuttugu og tvær milljónir átta hundruð og fimm þúsund tvö hundruð og tólf krónur - og skiptist í jafn marga hluti að fjárhæð 1 króna." Þá fellur 5. mgr. 6. gr. samþykkta Glitnis banka hf. brott. [2] Hægt er að koma skriflegri kröfu til skrifstofu félagsins á faxnúmer: 4404001 eða á pdf-formi á netfangið: hluthafafundur@glitnir.is. Frumritum gagna skal skilað til skrifstofu félagsins mánudaginn 6. október 2008.
Hluthafafundur Glitnis Banka hf.
| Source: Glitnir banki hf.