Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur í dag lækkað lánshæfismatseinkunn langtímaskuldbindinga Landsbankans í 'B' úr 'BBB' , einkunnir vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans í 'B' úr 'F3' og einkunn fyrir fjárhagslegan styrk sem 'F' úr 'C'. Lánshæfismatseinkunnir bankans eru á athugunarlista. Langtímaskuldbindingar dótturfélags bankans í Bretlandi, Landsbanki Heritable Bank, voru einnig lækkaðir í 'BB' úr 'BBB', einkunnir vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans sem 'B' úr 'F3' og einkunn fyrir lækkuð í 'D' frá 'C'. Lánshæfismatseinkunnir bankans eru á athugunarlista. Nánari rökstuðning Fitch má finna í fréttatilkynningu hér meðfylgjandi. Frekari upplýsingar veitir Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs í s. 820-6340.
Fitch lækkar lánshæfismatseinkunn Landsbankans í B / B / F
| Source: Landsbanki Íslands hf.